Háskólinn á Akureyri

Umsóknarfrestur fyrir Erasmus styrk og skiptinám skólaárið 2011-2012 er 1. mars 2011. Umsóknir sem berast eftir

Erasmus

Umsóknarfrestur fyrir Erasmus styrk og skiptinám skólaárið 2011-2012 er 1. mars 2011. Umsóknir sem berast eftir þann tíma fara á biðlista.

ERASMUS - stúdentaskipti
Háskólinn á Akureyri sér um að úthluta styrkjum til sinna stúdenta en landskrifstofa Erasmus sér um greiða út styrkinn. Stúdentar sækja um í gegnum umsóknarkerfi landskrifstofu eða á heimasíðu HA hér til hliðar undir Erasmus umsókn.

ERASMUS stúdenta umsókn samanstendur af eftirfarandi:

  1. Rafrænni umsókn sem fyllt er út á netinu og prentuðu eintaki af henni. Boðið er upp á prentvæna útgáfu af umsókninni EFTIR að búið er að senda hana rafrænt ("submit").
  2. "Learning Agreement" sem fulltrúi skorar, deildar eða skóla þarf að skrifa undir (skjal hér að neðan).
    Athugið að undirskrift frá gestaskóla kemur síðar.
  3. Námsferli (einkunnum) á ensku frá nemendaskrá.
    Þessum gögnum þarf að skila til alþjóðafulltrúa viðkomandi skóla fyrir 1. mars.

Hvernig á að bera sig að:
Byrjaðu á því að fylla út Námssamning "Learning Agreement" og fá það undirritað. Umsóknin telst hvort eð er ekki gild fyrr en þetta skjal er frágengið.  Námssamningur er samningur á milli stúdents og heimaskóla þess efnis að samþykkt námskeið við gestaskólann verði að fullu metin sem hluti af námi stúdents við heimaskólann. Ef ekki er ljóst hvaða námskeið þú munt taka við gestaskólann, er í lagi að skila inn "Learning Agreement" þar sem engin námskeið eru tilgreind ef viðkomandi skor/deild samþykkir það.

Í rafrænu umsókninni er beðið um ERASMUS "ID Code" fyrir gestaskólann (t.d "DK KOBENHA01). Gott er að vera búinn að finna þetta áður en byrjað er að fylla umsóknina út. Á síðunni http://www.moveonnet.eu/ er hægt að finna þessar upplýsingar, velja "Directory" og síðan "Countries" og síðan skóla.

Umsóknin er í fimm skrefum. Til að fara á milli skrefa verður að nota "next" og "previous" takkana á forminu. Það má EKKI nota "back" takkann í vefskoðaranum. Við það tapast umsóknin. EFTIR að búið er að senda inn umsóknina rafrænt ("submit") er boðið upp á prentvæna útgáfu.

Hvað er ERASMUS styrkur?

ERASMUS
gerir stúdentum kleift að stunda nám við háskóla eða æðri menntastofnun í öðru þátttökulandi í 3-12 mánuði. Stúdentar eiga að geta flust á milli háskóla, án þess að það tefji þá í námi. Skilyrði fyrir styrkveitingu til stúdenta er því að háskóli sem sendir stúdent sem skiptinema skuldbindi sig til að meta að fullu nám hans erlendis sem hluta að námi heima við, samkvæmt ECTS-kerfinu.

Stúdentar á fyrsta ári háskólanáms geta ekki fengið Erasmus styrk. Að öðru leyti er nám á öllum stigum háskólanáms styrkt, þ.m.t. doktorsnám. Samstarfssamningur verður að vera í gildi milli viðkomandi háskóla áður en stúdentaskipti geta átt sér stað. Styrkjum er einungis ætlað að mæta ferða- og viðbótarkostnaði sem stúdentar verða fyrir við að flytjast á milli skóla, svo og kostnaði sem þeir kunna að þurfa að greiða vegna tungumálanáms í tengslum við nám sitt erlendis. Að öðru leyti er gert ráð fyrir að stúdentar haldi sínum venjulegu láns- eða styrkjamöguleikum heima fyrir óbreyttum. Stúdentar sem ekki hljóta styrk geta einnig notið góðs af skipulögðu samstarfi evrópskra háskóla og farið utan sem ERASMUS skiptinemar án styrks.
Erasmus skiptinemar greiða ekki skólagjöld í þeim skóla þar sem þeir stunda nám sem gistinemar. Um það bil 200 íslenskir stúdentar hafa árlega farið utan á vegum Erasmus. Styrkupphæð getur breyst á milli ára.

Ýmsar skýrslur og kannanir hafa leitt í ljós að tímabundið nám í ókunnu landi getur verið mjög gefandi, bæði fræðilega, persónulega og félagslega. Kynni stúdentsins af öðru landi en föðurlandi sínu gerir hann færari um að aðlagast margvíslegum aðstæðum, eykur hæfni hans til að eiga samskipti við fólk af ólíkum menningarbakgrunni og veitir honum þekkingu á málefnum Evrópu. Þessi reynsla er einnig umtalsverður kostur þegar komið er út á vinnumarkaðinn.

Erasmus styrkir hafa ekki áhríf á námslán frá LÍN.

Svar við umsókn:

  • Svar við umsókn um styrk ætti að liggja fyrir í lok apríl eða byrjun maí.
  • Svar varðandi námsdvöl frá gestaskóla liggur oftast fyrir í maí eða júní. Ef gestaskóli hafnar umsókn er mjög oft hægt að fá inni í öðrum skólum (í umsókn gesta stúdentar tilgreint „varaskóla“)

Samningur og fyrri greiðsla styrks

  • Áður en stúdent fer utan er gengið frá samningi vegna styrksins á milli stúdents og heimaskóla.
  • Í „Erasmus Student Charter“ (.doc, 34 kb) sem er fylgiskjal með samningnum koma fram réttindi og skyldur stúdentsins.
  • Stúdent fær 70% af styrknum fyrir brottför.

Uppgjör og seinni greiðsla styrks

  • Að námsdvöl lokinni þarf stúdent að fylla út rafræna lokaskýrslu.
  • Stúdent þarf að skila inn staðfestingu á dvölinni frá gestaskóla sem getur verið yfirlit yfir lokin námskeið (transcript of records) eða annað formlegt skjal frá gestskóla. Það hefur ekki áhrif á styrkinn þó stúdent nái ekki að standast próf við gestaskólann að því gefnu að vottað sé að stúdent hafi stundað námið.
  • Stúdent fær 30% af styrknum sé gengið frá ofangreindum atriðum.
  • Hafi stúdent ekki sinnt námi á meðan á dvölinni stóð eða komið fyrr heim en til stóð getur komið til endurgreiðslu á styrknum í heild eða að hluta til.

Árið 2011-2012 hljóða ERASMUS styrkir upp á:

Flugfargjald = 500 Evrur til Kaupmannahafnar og London, 650 Evrur til annara ESB-landa
Staðaruppbót = 300 Evrum á mánuði
Hægt er að sækja um viðbótarastyrk vegna fötlunar

Hvert get ég farið?
Í veftrénu hér til vinstri er að finna lista yfir Erasmus-samninga HA fyrir hverja deild

Blar Gulur Hvitur
A A A
Bergvin Fannar Gunnarsson

„Ég valdi Háskólann á Akureyri að miklu leyti vegna staðsetningar skólans.“

Bergvin Fannar Gunnarsson nemandi
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf