Háskólinn á Akureyri

Námskeiđ fyrir lokaverkefnisnema Boðið verður upp á upprifjunarnámskeið fyrir lokaverkefnisnema þar sem lögð

Námskeiđ fyrir lokaverkefnisnema

Boðið verður upp á upprifjunarnámskeið fyrir lokaverkefnisnema þar sem lögð verður áhersla á að kynna helstu gagna- og tímaritasöfn sem nýtast nemendum við heimildaöflun vegna rannsóknarvinnu er tengist lokaverkefninu.

Einnig verður heimildaskráningakerfið RefWorks kynnt fyrir þátttakendum en það gerir notendum kleift að halda utan um tilvísanir og útbúa heimildalista á skipulagðan hátt samkvæmt helstu stöðlum (t.d. APA) og hlaða leitarniðurstöðum beint úr gagnasöfnum á netinu (t.d. ProQuest, EbscoHost, Web of Science) og yfir í RefWorks.

Tímasetningar:

þriðjud. 9. feb. kl. 14:25 – 16:05 (samfélags- hagþróunar- og sálfræði) í K203
fimmtud. 11. feb. kl. 10:00 – 11:40 (auðlindafræði) í K105
föstud. 12. feb. kl. 10:00 – 11:40 (fjölmiðla- þjóðfélags- og nútímafræði) í K203
miðvikud. 17. feb. kl. 10:00 – 11:40 (lögfræði) í K203

Vinsamlega skráið ykkur með því að senda tölvupóst á astrid@unak.is og takið fram hvaða námskeið þið viljað sitja og á hvaða braut þið eruð.



Blar Gulur Hvitur
A A A
Atli Hafţórsson

„Mér finnst höfuđkostur ađ samhliđa góđum grunni eru fjölbreyttir valmöguleikar í náminu í ţjóđfélagsfrćđi.“

Atli Hafţórsson B.A. í ţjóđfélagsfrćđi
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf