Með millisafnalánum er átt við það þegar bókaverðir útvega rit sem bókasafnið á ekki, annað hvort ljósrit af tímaritsgreinum eða bækur, frá öðrum söfnum, innlendum eða erlendum. Mikil áhersla er lögð á hraða millisafnalánaþjónustu á Bókasafni Háskólans á Akureyri.
Þeir sem eiga gild bókasafnsskírteini er heimilt að nýta sér þessa þjónustu en bent skal á að hún er veitt gegn gjaldi. Ætlast er til að notendur athugi sjálfir hvort ritið finnist í Gegni áður en beðið er um millisafnalán.
Notendum millisafnalána er bent á að skrá sig inn á Gegni (með kennitölu og lykilorði). Þegar það hefur verið gert er notandi kominn á Mínar síður á sínu heimasvæði, til dæmis Norðurland. Á heimasvæðinu er meðal annars hægt að skoða stöðu sína hjá hverjum safnahópi, endurnýja útlán panta millisafnalán og fleira. Til að panta millisafnalán er smellt á flipann panta millisafnalán og þar er að finna eyðublöð millisafnalána, athuga þarf að skrá inn réttar og allar viðeigandi upplýsingar. Einnig er hægt að vera innskráður og leita í Gegni að ákveðnu riti og þegar það er fundið er hægt að smella á flipann panta millisafnalán og þá þarf ekki að slá inn frekari upplýsingar um ritið aðeins að staðfesta pöntunina. Á Mínar síður geta notendur fylgst með stöðu pantana sinna. Sjá nánar í umfjöllun um beiðnir.
Vinsamlega leitið vel í skrá Gegnis og í rafrænum gögnum áður en beðið er um millisafnalán.
Starfsmenn Háskólans á Akureyri greiða ekki fyrir millisafnalán en stúdentar greiða hálft gjald fyrir ljósrit og bókarlán.


