Háskólinn á Akureyri

Bókasafn Háskólans á Akureyri veitir starfsmönnum háskólans, nemendum hans og öðrum, aðgang

Um bókasafnið

Um bókasafniðBókasafn Háskólans á Akureyri veitir starfsmönnum háskólans, nemendum hans og öðrum, aðgang að upplýsingum og heimildum vegna náms, kennslu og rannsókna.

Lögð er áhersla á að bjóða aðgang að vönduðu úrvali gagnasafna og rafrænna tímarita á fræðasviðum háskólans og byggja upp bóka- og tímaritakost safnsins jafnt og þétt þannig að hann endurspegli fræðasvið háskólans.

Mikil áhersla er lögð á kennslu og þjálfun nemenda í upplýsingalæsi en það er sú færni sem gerir fólki kleift að leita upplýsinga, leggja mat á gæði þeirra og hagnýta þær í námi, kennslu og rannsóknum. 

Starfsfólk bókasafnsins leggur áherslu á að veita nemendum, starfsfólki háskólans og öðrum lánþegum faglega og persónulega þjónustu.

Bókasafn Háskólans á Akureyri er til húsa á háskólasvæðinu á Sólborg við Norðurslóð og er opið öllum.


 Afgreiðslutími vetur                  sumar
 mán. - fös.             08:00-18:00 08:00-16:00
 lau. 12:00-15:00 lokað


Afgreiðsla  460 8050
Upplýsingaþjónusta          460 8060
Bréfasími 460 8994
Tölvupóstur bsha@unak.is

Blar Gulur Hvitur
A A A
Björg Jónína Gunnarsdóttir

„Bæði námið og umhverfið hafa þroskað mig sem einstakling. Ég er farin að setja upp „iðjugleraugun“ og horfi í gegnum þau með aðra sýn á heiminn. “

Björg Jónína Gunnarsdóttir iðjuþjálfi
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf