Háskólinn á Akureyri

Hlutverk Háskólans á Akureyri er ađ veita nemendum tćkifćri til menntunar í metnađarfullu og alţjóđlegu náms- og rannsóknarumhverfi. Háskólinn skapar frćđimönnum sínum umhverfi og ađstöđu til rannsókna og nýsköpunar sem stuđlar ađ vexti og framţróun íslensks samfélags og veitir inn í ţađ nýjum straumum. Háskólinn leggur áherslu á gagnvirk tengsl viđ atvinnulífiđ.

Félagsvísindadeild

Almennar upplýsingar um félagsvísindadeild
Félagsvísindadeild

Í félagsvísindadeild er boðið upp á nám til B.A.-prófs í staðarnámi og fjarnámi í eftirfarandi greinum:
   Fjölmiðlafræði
   Nútímafræði
   Sálfræði
   Félagsvísindum

Almennt um fjarnám í félagsvísindadeild
Í Félagsvísindadeild er boðið upp á fjarnám um netið með kennslulotum í HA. Með þessu móti er hægt að stunda nám í félagsvísindadeild hvar sem er á landinu. Fjarnemar koma í stuttar kennslulotur á Akureyri og sækja tíma með staðarnemum þar sem megináhersla er lögð á verkefnavinnu og umræður.
Nemendur á 1. ári í félagsvísindadeild mæta í tvær lotur á haustmisseri. Að auki er gert ráð fyrir að nýnemar mæti á nýnemadag.
  • Lota 1. 10.-12. september
  • Lota 2. 8.-10. október

Kröfur til nemenda og sýn á kennslu
Félagsvísindadeild leggur áherslu á að fjarnám er ekki hlutastarf eða eitthvað sem hægt er að vinna í hjáverkum. Sama krafa er gerð til fjarnema og þeirra sem eru í staðarnámi enda er um sömu námskeið að ræða hjá fjarnemum og staðarnemum. Fjarnemar þurfa hins vegar að laga sig að þeirri staðreynd að aðgangur þeirra að kennara og gagnvirkum samskiptum geta verið takmarkaðri en hjá staðarnemendum og slík samskipti þurfa að byggjast á tæknilegum lausnum. Treysti nemendur sér ekki til að fara í fullt nám er alltaf mögulegt að skrá sig í hlutanám. Skilyrði fyrir því að nemandi geti stundað fjarnám er að hann geti jafnframt tekið þátt í lotunáminu á Akureyri þegar við á.

Kennsluaðferðir og námsmat
Kennsluaðferðir námskeiða í félagsvísindum og nútímafræði miðastvið að nemendur eru ýmist á staðnum eða í fjarnámi. Þetta felur m.a. í sér eitthvað af eftirtöldu:
    Fyrirlestrar verða teknir upp og settir á netið.
    Sérstakir tímar verða skilgreindir sem samráðs og umræðutímar í gegnum netið.
    Mikið verður byggt á samskipta- og kennsluvefnum Moodle.
    Námsmat verður framkvæmt í gegnum Moodle,verkefnaskil á netinu og/eða lokapróf.
    Ef um umræðutíma er að ræða verða sérstakar ráðstafanir gerðar gagnvart fjarnemum.

Almennt er gert ráð fyrir að nemendur taki eina af ofantöldum greinum til B.A.-prófs sem 180 aðalgrein og ljúki því námi á þremur árum. Nemendur eiga þó möguleika á ljúka námi í aðalgrein og aukagrein eða í tveimur aðalgreinum.

Aðalgrein og aukagrein
   Þriggja ára nám: Nemendur velja aðalgrein til 120 eininga og aukagrein til 60 eininga, samtals 180 einingar.
   Fjögurra ára nám: Nemendur velja aðalgrein til 180 eininga og aukagrein til 60 eininga, samtals 240 einingar.

Tvær aðalgreinar
   Fjögurra ára nám: Nemendur velja tvær aðalgreinar til 120 eininga, samtals 240 einingar.
   Kennsla er að talsverðu leyti sameiginleg á fyrsta námsári en greinist síðar í sundur á öðru og þriðja námsári. Auðvelt er fyrir nemendur að skipta um grein eftir eins misseris nám.

Símatsstefna
Námsmatið í öllum greinum félagsvísindadeildar er byggt á símatsstefnu sem þýðir að leitast er við að láta námskeiðum ekki ljúka með einu stóru prófi heldur eru verkefni og hlutapróf lögð fyrir nemendur jafnt og þétt yfir misserið. Þetta gerir nemendum kleift að fylgjast með eigin árangri. Hins vegar eru mörg námskeið í félagsvísindadeild samkennd með öðrum deildum, einkum á fyrsta ári, og því ekki unnt að koma símati við í þeim öllum.



Forseti hug- og félagsvísindasviðs:
Sigurður Kristinsson sími 460 8651, netfang sigkr@unak.is

Formaður félagsvísindadeildar: (félagsvísindi, fjölmiðlafræði, nútímafræði og sálfræði):
Birgir Guðmundsson, lektor sími 460 8658, netfang birgirg@unak.is

Umsjónarmaður alþjóðasamskipta:
Markus Meckl, dósent sími 460 8655, netfang markus@unak.is 

Skrifstofustjóri:
Heiða Kristín Jónsdóttir, sími 460 8039, netfang heida@unak.is

Deildarstjóri:
Torfhildur S. Þorgeirsdóttir, sími 460 8042, netfang torfhild@unak.is

Blar Gulur Hvitur
A A A
Hjörtur Ágústsson

„Ég flutti frá Reykjavík til Akureyrar til ađ stunda nám í nútímafrćđi. Námiđ var lćrdómsríkt ekki síst ferđ mín til Indlands í skiptinám. “

Hjörtur Ágústsson kynningarfulltrúi hjá Evrópu unga fólksins
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf