Almennar upplýsingar um félagsvísindadeild

Í félagsvísindadeild er boðið upp á nám til B.A.-prófs í eftirfarandi greinum:
- Fjölmiðlafræði
- Nútímafræði
- Samfélags- og hagþróunarfræði
- Sálfræði
- Þjóðfélagsfræði
Almennt er gert ráð fyrir að nemendur taki eina af ofantöldum greinum til B.A.-prófs sem 180 aðalgrein og ljúki því námi á þremur árum. Nemendur eiga þó möguleika á ljúka námi í aðalgrein og aukagrein eða í tveimur aðalgreinum.
Aðalgrein og aukagrein
- Þriggja ára nám: Nemendur velja aðalgrein til 120 eininga og aukagrein til 60 eininga, samtals 180 einingar.
- Fjögurra ára nám: Nemendur velja aðalgrein til 180 eininga og aukagrein til 60 eininga, samtals 240 einingar.
Tvær aðalgreinar
- Fjögurra ára nám: Nemendur velja tvær aðalgreinar til 120 eininga, samtals 240 einingar.
Kennsla er að talsverðu leyti sameiginleg á fyrsta námsári en greiðist síðar í sundur á öðru og þriðja námsári. Auðvelt er fyrir nemendur að skipta um grein eftir eins misseris nám.
Símat
Námsmatið í öllum greinum félagsvísindadeildar byggir á símati sem þýðir að námskeiðum lýkur ekki með einu stóru prófi heldur eru verkefni og hlutapróf lögð fyrir nemendur jafnt og þétt yfir misserið. Þetta gerir nemendum kleift að fylgjast með eigin árangri. Um símatið gilda sérstakar reglur sem birtar eru á heimasíðu deildarinnar.
Forseti hug- og félagsvísindasviðs:
Sigurður Kristinsson sími 460 8651, netfang sigkr@unak.is
Formaður félagsvísindadeildar: (fjölmiðlafræði, nútímafræði, sálfræði, samfélags- og hagþróunarfræði, þjóðfélagsfræði):
Birgir Guðmundsson, lektor sími 460 8658, netfang birgirg@unak.is
Umsjónarmaður alþjóðasamskipta:
Giorgio Baruchello, prófessor sími 460 8664, netfang giorgio@unak.is
Skrifstofustjóri:
Heiða Kristín Jónsdóttir, sími 460 8039, netfang hkj@unak.is
Fulltrúi:
Ingibjörg Smáradóttir, sími 460 8041, netfang ingibs@unak.is


