Háskólinn á Akureyri

{{sxs parseStefTag(293,297,0)}}Sjá náms- og kennsluskrá.Hægt er að fletta bæklingnum hér að

Nútímafrćđi

Fletta kynningarbæklingi 2009

Í félagsvísindadeild er boðið upp á þriggja ára nám til B.A.-prófs í nútímafræði (180 einingar).

Hvað er nútímafræði?
Nútímafræði er þverfagleg grein á sviði hugvísinda. Hún er þekkt kennslugrein erlendis, en Háskólinn á Akureyri er eini íslenski háskólinn sem býður upp á nám í þessari grein. Í náminu er hugað að rótum nútímans og þeim umbyltingum sem honum hafa fylgt. Námið er þverfaglegt vegna þess að fjallað er um nútímann frá mörgum hliðum, s.s. sjónarhóli heimspeki, sagnfræði, bókmenntafræði og ýmissa félagsvísindagreina. Námskeiðin eru kennd af fastráðnum kennurum deildarinnar eða stundakennurum, erlendum og innlendum, sem eru sérfræðingar hver á sínu sviði. Hluti kennslunnar fer fram á ensku.

Hver er þessi nútími?
Nútíminn er nafn á þeim hugmyndaheimi, lífsháttum og samfélagsgerð sem hófu að ryðja sér til rúms á Vesturlöndum á ofanverðri 18. öld. Max Weber lýsti innreið nútímans sem „afhelgun veraldarinnar“ en það vísar til þess að vísindalega grundvölluð rökhyggja tekur að ráða ríkjum yfir daglegu lífi mannsins í stað trúarbragða og hjátrúar. Það felur í sér að samfélag, stjórnsýsla og menning lúta í auknum mæli röklegri reglufestu sem þar með opna möguleika fyrir framgangi almennra mannréttinda, lýðræðis og einstaklingsfrelsis. Um leið fylgja þessari framvindu m.a. rótleysi og einangrun einstaklingsins, tilgangsleysi í afhelguðum heimi og nýjar tegundir mismununar og ranglætis. Aðdráttarafl borgarlífsins er sterkt, jafnt í Brasilíu, Kína og á Íslandi, en borgin er eitt mikilvægasta tákn nútímans. Og nútíminn heldur ótrauður áfram með öllum sínum þverstæðum sem birtast t.d. ljóslega í auknum lífslíkum fólks annars vegar og þjóðarmorðum hins vegar.

Hvers vegna nútímafræði?

  • Nútímafræði er góður kostur fyrir þá sem vilja afla sér breiðrar menntunar með öflugum grunni í hugvísindum.
  • Nútímafræði hentar vel fyrir þá sem vilja taka hluta af námi sínu við erlenda háskóla. Fyrsta árs námskeiðin eru góður undirbúningur undir námsdvöl erlendis og síðan er unnt að fella margvíslegt nám í hug- og félagsvísindum inn í B.A.-nám í nútímafræði við Háskólann á Akureyri.
  • Nútímafræði hentar vel fyrir þá sem vilja taka aðalgrein eða aukagrein í hug- eða félagsvísindum við Háskóla Íslands eða erlenda samstarfsháskóla.

Sex áherslusvið í nútímafræði
Nemendur sem taka nútímafræði sem 180 eininga aðalgrein velja sjálfir sín áherslusvið sem gerir námið mjög sveigjanlegt og í raun einstaklingsmiðað. Valnámskeiðin eru talin upp hér fyrir neðan. Þau eru flest kennd innan félagsvísindadeildar en sum í lagadeild, kennaradeild og utan sviðsins.

Uppbygging námsins
Hægt er að taka nútímafræði til 180, 120 eða 60 eininga. 180 eininga námið er í stórum dráttum þannig byggt upp að á fyrsta námsári taka nemendur ýmis grunnnámskeið, eins og t.d. Vinnulag í hug- og félagsvísindum, Hugmyndasögu, Iðnbyltingu og hnattvæðingu, Upplýsingarýni, Inngang að fjölmiðlafræði, Inngang að þjóðfélagsfræði, Afbygging 20. aldar og Siðfræði og álitamál. Á öðru og þriðja ári taka nemendur námskeið eins og Nútímahugtakið, Einstaklingur og samvitund, Kynjafræði, Fjórða valdið I og II, og Íslenskir fjölmiðlar I og II, ásamt því að sækja málstofur í nútímafræði, eina á hverju misseri, þar sem kafað er í sérhæfð efni eins og t.d. framfarahugsjón nútímans, þjóðerni og þjóðernisvitund, borgir og borgarvæðingu, helförina, útópíur, frelsishugtakið, þróun einstaklingsvitundar, meinta árekstra ólíkra menningarheima, hryðjuverk og þjóðernishreinsanir. Á öðru og þriðja ári bera nemendur aukna ábyrgð á eigin námi með því að velja sér námskeið af tveimur af sex áherslusviðum. Náminu lýkur með 12 eininga B.A.-ritgerð.


Ađ námi loknu

B.A.-próf í nútímafræði er góður undirbúningur fyrir framhaldsnám í ýmsum greinum hug- og félagsvísinda. Það eflir víðsýni, skilning á eigin umhverfi, gagnrýna hugsun og getu til að takast á við flókin verkefni. Námið veitir m.ö.o. staðgóða almenna menntun sem er eftirsóknarverð í margvíslegum störfum, hvort sem er hjá ríki eða sveitarfélögum, stofnunum, samtökum eða einkafyrirtækjum.



Sjá náms- og kennsluskrá.

Hægt er að fletta bæklingnum hér að ofan með því að smella á myndina, flett er með örvalyklunum eða með því að smella músinni á horn bæklingsins.
Blar Gulur Hvitur
A A A
Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir

„Uppsetning framhaldsnáms í viđskiptafrćđi er sérstaklega áhugavert og gefur svigrúm varđandi skipulagningu og dreifingu á vinnuálagi.“

Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir framkvćmdastjóri Menningarhússins Hofs
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf