Veturinn 2012-2013 stendur
fjarnám í hjúkrunarfræði á fyrsta ári til boða í Reykjanesbæ og á Ísafirði. Eftir samkeppnispróf í
desember er reiknað með að heildartala nemenda á fyrsta ári á vormisseri 2013 verði 50. Fjarnám í hjúkrunarfræði hefur verið
í boði við Háskólann á Akureyri frá árinu 1998. Meginmarkmið hjúkrunarfræðideildar er að mennta einstaklinga í
undirstöðugreinum heilbrigðisvísinda í samræmi við þarfir samfélagsins hverju sinni. Nám til B.S.-prófs í
hjúkrunarfræði tekur fjögur ár. Inntökuskilyrði eru að öllu jöfnu stúdentspróf eða sambærileg menntun.
Klínískt nám hefst strax á fyrsta ári, fer fram víða um land og tekur samtals 24 vikur.
Nám og kennsla
Kennsla staðar- og fjarnema fer fram samtímis með notkun gagnvirks myndfundabúnaðar og
kennarar nýta einnig rafræn kennslukerfi og tölvusamskipti. Gert er ráð fyrir að fjarnemar séu í fullu námi líkt og staðarnemar.
Deildin lítur svo á að persónuleg samskipti við fjarnema séu grundvallaratriði við kennslu í hjúkrunarfræði. Einnig er litið
svo á að það námsumhverfi sem skapast í hópi nemenda sé vænlegt til árangurs. Gert er ráð fyrir að nemendur komi til
kennslu á Akureyri að lágmarki eina viku á hverju misseri.
Hópstærðir
Það er markmið deildarinnar að hverjum árgangi í staðarnámi fylgi
a.m.k. einn hópur fjarnema. Skilyrði fyrir því að fjarkennsla sé sett á fót er samningur við símenntunarmiðstöð eða
hliðstæða aðila á viðkomandi stað. Gerð er krafa um að minnst tíu nemendur hefji fjarnámið þar sem það er í
boði.
Upplýsingar
Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar um námskipulagið og upplýsingar
veitir Ingibjörg Smáradóttir, skrifstofustjóri heilbrigðisvísindasviðs, í síma 460 8036, netfang: ingibs@unak.is.


