Fjarnám í
iðjuþjálfunarfræði er hægt að stunda hvar sem er á landinu og er Háskólinn á Akureyri eina íslenska menntastofnunin sem
býður upp á slíkt nám. Inntökuskilyrði eru að öllu jöfnu stúdentspróf eða sambærileg menntun og eftir
samkeppnispróf í desember er reiknað með að heildartala nemenda á vormisseri fyrsta árs sé 25. Námið tekur fjögur ár og er
markviss undirbúningur undir þau fjölbreyttu störf sem iðjuþjálfar sinna innan heilbrigðis- og félagsþjónustu, í
skólakerfinu og á almennum markaði.
Nám og kennsla
Fjarnemar eru í „sjálfstýrðu námi“ milli þess sem þeir eru
í kennslulotum á Akureyri, en þær eru u.þ.b. vikulangar, einu sinni til tvisvar á misseri. Námsefni er aðgengilegt á vefnum og í
flestum tilvikum eru kennslustundir fyrir staðarnema teknar upp. Í lotum sækja fjarnemar tíma með staðarnemum þar sem megináhersla er lögð
á verklega þjálfun og umræður.
Samskipti nemenda
Ekki er gerð krafa um tiltekinn fjölda nemenda á hverju svæði, en það er kostur
fyrir nemendur að stunda námið saman og njóta aðstöðunnar sem er í boði hjá þeim fræðslu- og
símenntunarmiðstöðvum sem eru í samstarf við HA.
Upplýsingar
Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar um
námskipulagið og upplýsingar veitir Ingibjörg Smáradóttir, skrifstofustjóri heilbrigðisvísindasviðs, í síma 460
8036, netfang: ingibs@unak.is.


