Nám í
viðskiptafræði er hagnýtt nám þar sem einstaklingar eru menntaðir til stjórnunarstarfa, m.a. með þjálfun í faglegum
vinnubrögðum við stefnumótun, ákvarðanatöku og stjórnun. Samhliða eru nemendur þjálfaðir í fræðilegum
vinnubrögðum sem nýtast munu í framhaldsnámi.
Nemendur geta valið á milli tveggja áherslusviða:
• Stjórnun
og fjármál
• Stjórnun og markaðsfræði
Hvar verður námið í boði?
Námið er í boði í samstarf við fræðslu- og
símenntunarmiðstöðvar um allt land.
Nám og kennsla
Námsefni og öðrum samskiptum við nemendur verður fyrst og fremst miðlað um
myndfundabúnað og rafræn kennslukerfi. Einnig er ætlast til að nemendur komi til Akureyrar einu sinni á misseri. Til viðbótar eru upptökur úr
fyrirlestrum staðarnema og þulaðar glærur. Þær aðferðir eru notaðar sem gefa góða raun hverju sinni og taka þær mið af
búnaði og tækni á hverjum tíma.
Samstarfið við fræðslu- og símenntunarstöðvar hefur gefið mjög góða raun, ekki síst vegna þess hópeflis og samstarfs nemenda sem þar fer fram.
Hvenær er kennt?
Myndfundir fara fram utan venjulegs vinnutíma, þ.e. á virkum dögum eftir kl. 17:00.
Önnur miðlun er að mestu óháð stund og stað en nemendur geta haft samskipti við kennara og sín á milli á vefnum og á myndfundum.
Hópstærðir
Á hverjum fjarkennslustað eru myndaðir námshópar með tíu nemendum
að lágmarki.
Upplýsingar
Nánar má lesa um námskipulagið í kaflanum um námsbrautina hér aftar
í bæklingnum og upplýsingar veitir Ása Guðmundardóttir, skrifstofustjóri viðskipta- og raunvísindasviðs, í síma 460 8037,
netfang: asa@unak.is.
|
„Ég tel viðskiptafræðinámið við HA vera gott nám sem nýtist vel í fjölbreyttum störfum sem í hinu daglega líf. Áfangarnir voru kjarngóðir og áhugaverðir og gáfu góða mynd af þeim viðfangsefnum sem fjallað var um hverju sinni. Sá kostur að geta stundað slíkt nám í fjarnámi, þar sem framvindu námsins er stýrt eftir vilja og tíma hvers og eins, er einnig ótvíræður og gefur öllum tækifæri til að stunda nám, þrátt fyrir miklar annir í starfi eða leik. Ég leyfi mér hiklaust að mæla með viðskiptafræðináminu við HA.“ Böðvar Jónsson |
![]() |



