Háskólinn á Akureyri

Félagsvísindatorg Miðvikudaginn 10. mars kl. 12:00 flytur Anda Rožukalne erindið Horfur í heimi

Félagsvísindatorg

Anda Rožukalne Miðvikudaginn 10. mars kl. 12:00 flytur Anda Rožukalne erindið Horfur í heimi fjölmiðla Eystrasaltsríkjanna á félagsvísindatorgi í stofu L201.

Tæpir tveir áratugir eru liðnir frá því að Eystrasaltsríkin komust úr klóm Sovétríkjanna og öðluðust langþráð sjálfstæði og frelsi. Í erindi sínu ræðir Anda um þær róttæku breytingar sem orðið hafa á starfsumhverfi fjölmiðlafólks í Eystrasaltsríkunum á þessum tíma. Hún fjallar einnig um breytt viðhorf til starfs fjölmiðlafólks og stöðu þess í samfélaginu.

Anda Rožukalne er lektor við Stradins Háskólann í Riga og forstöðumaður fjölmiðladeildar skólans. Hún er menntaður fjölmiðlafræðingur og hefur að auki 15 ára reynslu sem blaðamaður og ritstjóri. Anda hóf feril sinn sem fræðimaður 1998 og hefur kennt við Háskóla Lettlands og Stradins Háskólann í Riga.



Efst á baugi

Nemendur

Starfsmenn

Á nćstunni

Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
Ómar Karlsson

„Háskólinn á Akureyri er ađgengilegur og vingjarnlegur skóli sem býđur upp á gott nám“

Ómar Karlsson nemandi
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf