Háskólinn á Akureyri

Félagsvísindatorg: Geđklofi - Sjúkdómar í augum, eyrum eđa taugakerfinu Miðvikudaginn 27. janúar ræðir Elín Díanna

Félagsvísindatorg: Geđklofi - Sjúkdómar í augum, eyrum eđa taugakerfinu

Elín Díanna GunnarsdóttirMiðvikudaginn 27. janúar ræðir Elín Díanna Gunnarsdóttir, dósent um geðklofa og mögulegar afleiðingar hans fyrir afkomendur einstaklinga sem greinast með sjúkdóminn.

Torgið fer fram í stofu L201, Sólborg og hefst kl. 12:00, allir velkomnir!

Elín fjallar um rannsókn sem hún vinnur nú að með samstarfsfólki við Karolinska Institutet í Stokkhólmi. Í þeirri rannsókn er lögð áhersla á að skoða hvort að börn einstaklinga sem greinst hafa með geðklofa búi við auknar líkur á því að greinast með sjúkdóm í augum, eyrum eða taugakerfinu samanborið við börn foreldra sem ekki hafa greinst með geðklofa.

 

Elín Díanna er dósent í sálfræði við Háskólann á Akureyri. Hún lauk doktorsnámi í klínískri sálfræði frá Rosalind Franklin University of Science and Medicine í Bandaríkjunum árið 2001. Í kjölfarið starfaði hún við Duke University Medical Center þar til hún hóf störf við Háskólann á Akureyri. Elín Díanna HA gegndi stöðu umsjónarmanns með félagsvísindanámi á árunum 2003-2006 og stöðu deildarforseta Félagsvísinda- og lagadeildar 2006-2007. Auk þess að starfa sem dósent er Elín Díanna sjálfstætt starfandi sálfræðingur á Akureyri.

 



Efst á baugi

Nemendur

Starfsmenn

Á nćstunni

Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
Gunnţór Eyfjörđ Gunnţórsson

„Međ ţá menntun og reynslu sem ég hef öđlast hlakka ég til ađ raungera hugmyndir mínar og ţekkingu í starfi sem grunnskólakennari. “

Gunnţór Eyfjörđ Gunnţórsson kennari
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf