Miðvikudaginn 10. febrúar kl. 12:00 í stofu L201 fjallar Dr. Ársæll
Már Arnarsson um rannsóknir á þyngd, líkamsmynd og lífsánægju íslenskra skólabarna á félagsvísindatorgi.
Sú rannsókn er hluti af alþjóðlegu verkefni sem unnið er við Háskólann á Akureyri og nefnist "Health Behaviour in School-Aged Children" og
er stutt af Alþjóðaheilbrigðismálastofnunni (WHO). Í verkefninu eru notuð gögn frá tæplega 12 þúsund nemendum í 6., 8. og
10. bekk.
Dr. Ársæll Már Arnarsson er dósent í sálfræði við Háskólann á Akureyri. Hann lauk meistaraprófi og síðar doktorsprófi frá Læknadeild H.Í. en áður hafði hann lokið B.A.-prófi í sálfræði frá sama skóla. Áður en Ársæll hóf kennslu við Háskólann á Akureyri starfaði hann sem lyfjavalsstjóri hjá Actavis og var stundakennari við Læknadeild H.Í. frá árinu 1994. Hann er meðhöfundur að rúmlega eitt hundrað alþjóðlegum tímaritsgreinum, bókarköflum og erindum um ýmis vísindaleg viðfangsefni.
Allir velkomnir.



