Þriðjudaginn 2. mars mun Rachael Lorna Johnstone fjalla um mannréttindi í þrengingum á
lögfræðitorgi við HA. Torgið fer fram í stofu L201 og hefst kl. 12:00. Allir velkomnir.
Efnahagskreppan sem skall á haustið 2008 hefur valdið fjölmörgum Evrópuríkjum, sem fram til þessa höfðu reiknað með stöðugum hagvexti, ófyrirséðum búsifjum. Í erindi sínu leitar Rachael svara við spurningunni um það hver verði örlög efnahagslegra, félagslegra og menningarlegra réttinda á krepputímum.
Rachael Lorna Johnstone er dósent við lagadeild Háskólans á Akureyri. Rannsóknir hennar hafa beinst að alþjóðlegri mannréttindalöggjöf, kenningum um femínisma, alþjóðalögum um bann við mismunun og þjóðarétti sem slíkum og samanburðarrétti. Rachael hlaut doktorsgráðu við Háskólann í Toronto 2004 (Doctor of Juridical Science, SJD). LL.M. í kennilegri lögfræði frá European Academy of Legal Theory í Brussel árið 2000, in 2000 og LL.B.(hons) í lögum frá Háskólanum í Glasgow árið 1999. Greinar eftir Rachael hafa birst að undanförnu í virtum fræðiritum í Bandaríkjunum, Bretlandi og Íslandi. Helstu viðfangsefni hennar í fræðilegum skrifum eru mannréttindasamninganefndir Sameinðu þjóðanna og þjóðréttarreglur um ábyrgð ríkja.



