Föstudaginn 10. febrúar mun Þórir Sigurðsson eðlisfræðingur flytja erindi í málstofu auðlindadeildar undir yfirskriftinni: Tölfræðileg spá um Heklugos. Málstofan hefst kl. 12.10 í stofu M203 á Sólborg. Allir velkomnir.
Hekla hefur verið virk eldstöð í að minnsta kosti 7000 ár. Eftir landnám eru heimildir um 18 eldgos úr fjallinu og á miðöldum var það þekkt erlendis sem inngangur Helvítis.
Sýnt verður yfirlit þessara gosa með sagnfræðilegum upplýsingum um hvenær þau áttu sér stað og hve lengi þau
vöruðu og jarðfræðilegum niðurstöðum mælinga á magni gosefna í hraunum og öskulögum frá sumum þeirra. Einnig verður
minnst á gjóskulagatímatal Sigurðar Þórarinssonar og áhrif eldgosa á umhverfi, lífríki og samfélag.
Sett verða fram þrjú stærðfræðileg líkön um samband þriggja mælistærða: gosmagns, goshlés og goslengdar og stuðlar
þeirra metnir tölfræðilega.
Eftir hugleiðingar um forsendur líkananna og marktöku og nákvæmni stuðlanna verður þeim beitt á nokkur gos sem gögn vantar um í fortíðinni og möguleg gos í framtíðinni. Að lokum vakna spurningar um samskonar líkön fyrir önnur eldfjöll, á Íslandi eða í öðrum löndum.



