Háskólinn á Akureyri

Málstofa í viđskiptafrćđi Þann 12. febrúar flytur Ögmundur Knútsson, lektor við viðskiptadeild HA erindi

Málstofa í viđskiptafrćđi

Ögmundur KnútssonÞann 12. febrúar flytur Ögmundur Knútsson, lektor við viðskiptadeild HA erindi á málstofu í viðskiptafræði. Yfirskrift erindisins er Rannsóknir á virðiskeðju sjávarútvegsins. Málstofan fer fram í stofu R312 á Borgum kl. 12:10 - 12:55.

Erindið fjallar um rannsókn Ögmundar Knútssonar, Helga Gestssonar og Ólafs Klemenssonar á virðiskeðju íslensk sjávarútvegs og þeim breytingum sem orðið hafa á henni á síðustu árum.  Byggt er á átta viðtölum við stjórnendur í íslenskum sjávarútvegi sem tekin voru vorið árið 2009 og eru niðurstöður  tengdar við fyrri rannsóknir þeirra þriggja auk rannnsókna Ögmundar um skipulagsbreytingar á íslenskum sjávarútvegi sem hófust með doktorsritgerð hans. 

Miklar breytingar hafa orðið á virðiskeðju íslensk sjávarútvegs frá því er sölusamtök framleiðanda voru alsráðandi í útflutningi á fiski frá Íslandi til þess í dag að framleiðslufyrirtæki eru í mörgum tilfellum sjálf ábyrg fyrir markaðssetningunni.  Þessar breytingar hafa haft mikil áhrif á verðmætasköpum og skipulagsgerð sjávarútvegs sem farið verður yfir í þessu erindi.

 

 

 



Efst á baugi

Nemendur

Starfsmenn

Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
Eva Björk Axelsdóttir

„Frá ţví ađ ég ákvađ ađ fara í hjúkrunarfrćđinám kom aldrei neitt annađ en Háskólinn á Akureyri til greina. “

Eva Björk Axelsdóttir hjúkrunarfrćđingur
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf