Háskólinn á Akureyri

Myndbandasamkeppni - Erasmus 25 ára 2012 Erasmus áætlunin hóf göngu sína árið 1987 og því

Myndbandasamkeppni - Erasmus 25 ára 2012

Erasmus áætlunin hóf göngu sína árið 1987 og því verður haldið upp á 25 ára afmæli hennar á næsta ári.
Af því tilefni mun bæði framkvæmdastjórn ESB og landskrifstofur Erasmus standa fyrir ýmsum viðburðum næsta vor.

Landskrifstofa Erasmus á Íslandi og íslensku háskólarnir hafa af þessu tilefni ákveðið að efna til myndbandasamkeppni meðal fyrrverandi og núverandi Erasmus stúdenta.

Einu skilyrðin eru að myndbandið veki áhuga áhorfandans á Erasmus stúdentaskiptum og lengd þess á að vera 2 til 5 mínútur.
Efnistök geta verið mjög fjölbreytt, t.d.
- myndbrot frá Erasmus dvöl og settar inn skýringar með tali og/eða texta (má setja saman myndbrot frá fleiri en einum stúdent)
- frásögn af því hvernig er að vera í skiptinámi (heimildamyndastíll)
- leikið efni
- ... hvað sem er svo lengi sem það vekur áhuga á Erasmus stúdentaskiptum

1. Verðlaun* = 150.000 kr.
2. Verðlaun* = 75.000 kr.
3. Verðlaun* = 50.000 kr.

*Sá fyrirvari er gerður að 10 eða fleiri myndbönd sem uppfylla kröfur þurfa að berast. Séu þau færri áskilur landskrifstofa og háskólarnir sér þann rétt að breyta upphæðum í verðlaunafé.

Frestur til að skila inn myndböndum er til 1. apríl 2012.
Hægt er að skila inn myndböndum með því að;
- setja myndbandið á „Youtube“ og senda slóðina á netfang alþjóðafulltrúa þíns skóla og til „oeo@hi.is
- setja myndbandið á geisladisk og skila til alþjóðafulltrúa þíns skóla.

Með því að senda myndband í keppnina veitir eigandi þess landskrifstofu Erasmus og háskólum heimild til að birta það á vefsíðum sínum. Öll önnur notkun á myndbandinu er háð samþykki eiganda þess. 

Með von um að fá að sjá myndbönd frá sem flestum.
Hafið endilega samband við alþjóðafulltrúa ykkar heimaskóla ef það eru einhverjar spurningar.

Óskar Eggert Óskarsson (oeo@hi.is), landskrifstofa Erasmus
Alma Ragnarsdóttir (alma@lhi.is), Listaháskóli Íslands
Guðlaug Matthildur Jakobsdóttir (gudlaugm@ru.is), Háskólinn í Reykjavík
Magnús Smári Snorrason (maggi@bifrost.is), Háskólinn á Bifröst
Rúna Vígdís Guðmarsdóttir (ruv@hi.is) , Háskóli Íslands
Rúnar Gunnarsson (runarg@unak.is), Háskólinn á Akureyri
Þorbjörg Valdís Kristjánsdóttir (tvk@lbhi.is), Landbúnaðarháskóli Íslands



Efst á baugi

Nemendur

Starfsmenn

Á nćstunni

Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
Hafdís Huld Björnsdóttir

„Skiptinám mitt viđ University of Manitoba í Winnipeg veitti mér ómetanlega reynslu og víkkađi sjóndeildarhringinn til muna. “

Hafdís Huld Björnsdóttir nemandi í viđskiptafrćđi
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf