Háskólinn á Akureyri

Nýfundinn hafstraumur gćti breytt loftslagskenningum Sunnudaginn 21. ágúst birtist í tímaritinu Nature Geoscience grein eftir

Nýfundinn hafstraumur gćti breytt loftslagskenningum

Sunnudaginn 21. ágúst birtist í tímaritinu Nature Geoscience grein eftir þá Kjetil Våge, Robert Pickart, Michael Spall, Héðinn Valdimarsson, Steingrím Jónsson, Daniel Torres, Svein Østerhus og Tor Eldevik; “Significant role of the North Icelandic Jet in the formation of Denmark Strait overflow water.” Steingrímur Jónsson, einn greinahöfunda, er prófessor við auðlindadeild HA.

Í greininni er gerð grein fyrir hafstraumi sem fannst fyrir nokkrum árum úti yfir landgrunnshlíðinni norðan Íslands og flytur þungan yfirfallssjó út um Grænlandssund út í Grænlandshaf þar sem hann sekkur til botns. Uppgötvun þessa straums breytti hugmyndum manna um djúpsjávarmyndun í höfunum norðan Íslands og þar með hugsanlegum áhrifum djúpsjávarmyndunar á loftslagsbreytingar.

Nú stendur yfir mánaðarlangur leiðangur á rannsóknaskipinu Knorr, frá Woods Hole Oceanograhic Institution. Í leiðangrinum verða lagðar margar straummælalagnir á sniði sem liggur milli Íslands og Grænlands norðan Grænlandssunds, m.a. til að kanna betur langtímabreytingar í strauminum sem fjallað er um í greininni. Þessi leiðangur er samstarf vísindamanna frá Bandaríkjunum, Íslandi, Noregi og Hollandi.

Tengil á greinina má finna hér og hér má lesa fréttatilkynningu National Science Foundation í Bandaríkjunum um áðurnefnda grein og leiðangurinn.

Þá var einnig fjallað um málið í Fréttablaðinu 24. ágúst 2011 en nálgast má umfjöllunina á Vísi.is, smellið hér.



Efst á baugi

Nemendur

Starfsmenn

Á nćstunni

Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
Jóhanna Jónsdóttir

„Hjúkrunarfrćđi viđ HA er fjölbreytt og líflegt nám.“

Jóhanna Jónsdóttir nemandi
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf