Háskólinn á Akureyri

Verkefni HA og UNU-FTP í Belize Háskólinn á Akureyri, Sjávarútvegsskóli Háskóla

Verkefni HA og UNU-FTP í Belize

Frá undirritunHáskólinn á Akureyri, Sjávarútvegsskóli Háskóla Sameinuðu þjóðanna (UNU-FTP) og The Caribbean Regional Fisheries Mechanism (CRFM) hafa verið að vinna saman að þróun námsefnis um leiðtogaþjálfun fyrir yfirstjórnendur sjávarútvegsstofnana í tengslum við stjórn fiskveiða í aðildarlöndum CFRM. Um er að ræða fimm daga námskeið sem halda á í Belize City í apríl. Háskólinn í Belize kemur einnig að þessu verkefni þar sem sérfræðingar HA vinna með þeim að því að aðlaga efnið að aðstæðum í Karabíska hafinu.

Verkefnið hefur verið í vinnslu frá desember 2008. Að verkefninu koma frá HA þeir Ársæll Már Arnarsson dósent í hug – og félagsvísindadeild, Helgi Gestson lektor í viðskiptadeild og Ögmundur Knútsson, lektor í viðskiptadeild.

Nú í desember var haldinn var vinnufundur í Belize City sem þeir Ársæll Már Arnarsson, Helgi Gestsson og Ögmundur Knútsson frá HA ásamt Þór Ásgeirssyni frá UNU-FTP sóttu. Í tenglum við þann fund var skrifað undir samstarfsamning milli Háskólans í Belize og CFRM um samstarf og er leiðtoganámskeiðið fyrsta verkefni innan þess. Í tilefni af því var undirritaður samningur milli þessara stofnanna og tekin viðtöl við aðila frá HA, UNU-FTP og CFRM. Meðfylgjandi er frétt sem birtist í dagblaði í Belize þar sem undirskrift samstarfs-samningsins eru gerð góð skil. Myndin hér að ofan er frá undirskriftinni. Á myndina vantar Helga Gestsson.



Efst á baugi

Háskóladagurinn 2010


Nemendur

Starfsmenn

Á nćstunni

Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
Eva Björk Axelsdóttir

„Frá ţví ađ ég ákvađ ađ fara í hjúkrunarfrćđinám kom aldrei neitt annađ en Háskólinn á Akureyri til greina. “

Eva Björk Axelsdóttir hjúkrunarfrćđingur
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf