Föstudaginn 12. febrúar kl. 08:10 – 09:50 í stofu K-201, munu fulltrúar
NSCD, Beth Fox og John Florkiewicz kynna starfsemina í Winter Park. Fyrirlesturinn er í boði iðjuþjálfunarfræðideildar og er öllum opinn.
Í Winter Park er mjög umfangsmikið starf allt árið þar sem fjölbreytt útivistartilboð fyrir fatlaðra eru í boði. ÍF og VMÍ hófu samstarf við NSCD árið 2006 og það samstarf hefur reynst mjög mikilvægt í uppbyggingarstarfi vetraríþrótta fatlaðra á Íslandi. Í Winter Park er mikil áhersla er lögð á þjálfun og endurhæfingu í gegnum útivist og íþróttir og þar er markvisst samstarf við sjúkrahús, skóla og stofnanir.
Íþróttasamband fatlaðra sendir fyrsta keppandann í alpagreinum á vetrarólympíumót fatlaðra í Kanada en það fer fram 12. – 21. mars 2010. Það er Erna Friðriksdóttir frá Egilsstöðum en hún hefur stundað æfingar og keppni í Winter Park frá árinu 2007. Samstarfið við NSCD Winter Park er því bæði í þágu almennra iðkenda og þeirra sem stefna langt á sviði vetraríþrótta fatlaðra.
Beth Fox er forstöðumaður í Winter Park og John Florkiewicz er með áralanga reynslu af styrktarþjálfun fatlaðra einstaklinga m.a. landsliðsfólks USA í vetraríþróttum.



