Háskólinn á Akureyri

Vísindafélag Íslendinga Laugardaginn 13. mars verður fundur í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu kl

Vísindafélag Íslendinga

Grétar Þór EyþórssonLaugardaginn 13. mars verður fundur í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu kl 15.00. Fyrirlesari er Grétar Þór Eyþórsson prófessor í stjórnmálafræði og aðferðafræði við Háskólann á Akureyri. Erindi hans ber yfirskriftina Íbúakosningar. Er málið svona einfalt?

Aukin afskipti og áhrif hins almenna borgara á ákvarðanatöku í samfélaginu – einkanlega milli hinna reglubundnu kosninga til sveitarstjórna og Alþingis – eru meðal mála málanna í þjóðfélaginu í dag. Aukin áhrif hins almenna borgara eru að margra mati ákall nýrra tíma í þjóðfélaginu, ákall um bætt lýðræði. Í erindinu er fjallað um nokkrar þeirra tilrauna sem gerðar hafa verið í því skyni að efla lýðræði í sveitarstjórnum í nágrannalöndum okkar? Hver er reynslan af slíkum tilraunum? Sjónum verður þó einkanlega beint að íbúakosningum í sveitarfélögum og fjallað um helstu rök með því að viðhafa þær, en einnig fjallað um af hverju rétt geti verið að gæta hófs í því sambandi. Nánar á http://www.visindafelag.is/



Efst á baugi

Nemendur

Starfsmenn

Á nćstunni

Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
Jón Ingi Björnsson

„Ţverfagleiki náms viđ HA gerir manni kleift ađ sjá hlutina í nýju ljósi. Ég sé ekki eftir ţví ađ hafa valiđ HA. “

Jón Ingi Björnsson sjávarútvegsfrćđingur
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf