Á framhaldsbraut kennaradeildar er boðið upp á nám til kennsluréttinda fyrir þá sem lokið hafa
bakkalárprófi, öðru en B.Ed. prófi, sambærilegu prófi eða meira námi og vilja afla sér kennsluréttinda á grunn- eða
framhaldsskólastigi. Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér lög og reglugerðir þar að lútandi og hafa til hliðsjónar í vali
á námsleið og sérhæfingu. Þetta eru lög nr. 87/2008 ásamt reglugerðum nr. 241/2009 og 872/2009. Mennta- og menningar-
málaráðuneytið veitir kennsluréttindi.
Einnig býður framhaldsbraut upp á diplómu- og meistaranám til undirbúnings ýmissa starfa í menntakerfinu sem
krefjast framhaldsmenntunar á sviði menntunarfræði. Í boði eru þrjár námsleiðir; diplómunám, Dipl.Ed., sem er 60 eininga
nám og jafnframt fyrra ár í meistaranámi, 120 eininga M.Ed.-nám eða 120 eininga rannsóknartengt M.A.-nám.
|
„Ástæðan fyrir því að ég fór í meistaranám er einföld, ég vildi læra stjórnun skólastofnana þar sem ég starfa við skólastjórnun. Námið er afar heppilegt fyrir mig þar sem ég get stundað það samhliða starfi. Námskeiðin eru fjölbreytt og tengjast starfi mínu. Mikil áhersla er lögð á gagnrýna hugsun, ígrundun og samvinnu. Kennslan er persónuleg og kennararnir leggja sig fram við að aðstoða nemendur eftir fremsta megni.“ Valdimar Víðisson |
![]() |
Félagslíf nemenda
Nemendur í kennaradeild á hug- og félagvísindasviði HA eiga
sér nemendafélag sem nefnist Magister. Félagið stendur fyrir ýmsum uppákomum, ýmist á eigin vegum eða innan ramma starfsemi Félags
stúdenta við Háskólann á Akureyri (FSHA). Má þar nefna vísindaferðir, sprellmót, kaffihúsakvöld og ýmislegt fleira
í þeim dúr. Nánari upplýsingar eru á www.fsha.is/magister/



