Háskólinn á Akureyri

Veðurfarsbreytingar eru farnar að hafa veruleg áhrif á bæði norður- og suðurskautssvæðin, hugsanleg er

Heimskautaréttur (Polar Law) LL.M./M.A.

Veðurfarsbreytingar eru farnar að hafa veruleg áhrif á bæði norður- og suðurskautssvæðin, hugsanleg er opnun nýrra skipaleiða, leysa þarf deilur um landamæri og markalínur hafsvæða, bæði þær deilur sem þegar eru fyrir hendi og aðrar er upp kunna að koma. Á innlendum sem alþjóðlegum vettvangi er í vaxandi mæli fjallað um viðfangsefni og álitaefni tengd stjórnun, hvort heldur er landsyfirvalda eða staðbundinna stjórnvalda og síðast en ekki síst vegna þess að umhverfisógn er mikil og hættumerki mörg sem kalla á bráðar aðgerðir. Eitt þeirra áhugaverðu rannsóknarsviða, sem námið getur lagt lið, tengist þeim lærdómi er hugsanlega má draga af því lagakerfi sem þegar er til fyrir Suðurskautslandið, við að finna lausnir fyrir norðurskautssvæðin.


Heimskautaréttur lýsir lagaumhverfi norður- og suðurskautsins. Í námsefninu er lögð áhersla á þau svið alþjóðalaga og landsréttar sem tengjast heimskautasvæðunum. Tekið er á viðfangsefnum umhverfislaga og fjölbreytni lífríkisins, mannréttinda, hafréttar, laga um sjálfbæra þróun og auðlindir, þar á meðal á álitamálum er varða fullveldi og deilur um markalínur á sjó og landi, réttindi frumbyggja í norðri, sjálfstjórn og stjórnfestu svo og landa- og auðlindakröfur á heimskautasvæðunum. Í náminu er mikið lagt upp úr alþjóðlegu samstarfi við háskóla víðs vegar um heiminn. Meistaranám í heimskautarétti við Háskólann á Akureyri er það fyrsta sinnar tegundar.


Háskólinn á Akureyri býður eftirfarandi námsleiðir í heimskautarétti:

120 eininga meistaranám sem lýkur með M.A.-gráðu

90 eininga meistaranám sem lýkur með LL.M.-gráðu (Legum Magister, meistari í lögum)

60 eininga diplómunám á meistarastigi


Nánar má kynna sér tilhögun námsins á www.unak.is/lagadeild. Umsjónarmaður námsins er Markus Meckl, netfang: polarlaw@unak.is.


Að námi loknu

Meistaranám í heimskautarétti er bæði ætlað löglærðum (LL.M.) sem og þeim sem ekki hafa lagt stund á nám í lögfræði (M.A.). Nám í heimskautarétti undirbýr nemendur fyrir störf hjá opinberum aðilum sem einkafyrirtækjum, á mismunandi stigi stjórnsýslu, hjá alþjóðasamtökum, hjá frjálsum félagasamtökum, hjá frumbyggjaþjóðum á norðurskautssvæðinu sem og hjá háskólum og rannsóknarstofnunum. Meistaraprófsnámið (LL.M. og M.A.) er einnig góður undirbúningur fyrir doktorsnám eða frekari rannsóknir á málefnum heimskautanna.


Kennarar

Kennarar í náminu koma víðs vegar að úr heiminum og eru meðal helstu sérfræðinga í heimskautarétti. Þeir eru með fjölbreyttan bakgrunn sem veitir nemendum innsýn inn í ólíka þætti eimskautaréttar og gefur náminu þá dýpt sem nauðsynleg er. Þetta gerir það að verkum að námið er einstakt í sinni röð. Kennarar í náminu eru þau Guðmundur Alfreðsson, Nigel Bankes heiðursdoktor við HA, Joan Nymand Larsen, Malgosia Fitzmaurice, Lauri Hannikainen, Tómas H. Heiðar, Lassi Heininen, Jón Haukur Ingimundarson, Timo Koivurova, Natalia Loukacheva, Tavis Potts, Níels Einarsson, Kári á Rógvi, David Vanderzwaag, Margrét Heinreksdóttir og fleiri leiðandi fræðimenn og sérfræðingar á sviði heimskautaréttar.


Fyrir nánari upplýsingar má senda tölvupóst á: polarlaw@unak.is

Yearbook of Polar Law
  Bæklingur um heimskautarétt
Blar Gulur Hvitur
A A A
Jón Ingi Björnsson

„Ţverfagleiki náms viđ HA gerir manni kleift ađ sjá hlutina í nýju ljósi. Ég sé ekki eftir ţví ađ hafa valiđ HA. “

Jón Ingi Björnsson sjávarútvegsfrćđingur
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf