
Rannsóknartengt meistaranám í viðskiptafræðum er 120 ECTS eininga nám sem er á margan hátt ólíkt
því sem gildir á bakkalárstigi. Til að mynda er ekki fyrirliggjandi ákveðin námskrá meistaranáms, heldur er námið
einstaklingsmiðað þannig að hver nemandi fylgir eigin námskrá sem er sérsniðin að þörfum hans og þess rannsóknarverkefnis sem
hann vinnur að á námstímanum. Meðal fyrstu verkefna meistarakandídatsins er að velja sér námskeið úr kennsluskrám HA og
samstarfsstofnana hans í náinni samvinnu við aðalleiðbeinanda sinn. Meistaranámsnefnd viðskipta- og raunvísindasviðs tryggir að hin
einstaklingsmiðaða námskrá standist ýtrustu gæðakröfur.
Námið skiptist í rannsóknarverkefni sem getur verið 60 eða 90 ETCS einingar og því eru námskeið 30 til 60 ECTS
einingar. Að lágmarki skal nemandi ljúka námskeiðum sem samsvara 30 ECTS einingum og þar af hið minnsta 10 ECTS einingum í
rannsóknaraðferðum. Önnur námskeið skal nemandi taka við HA eða samstarfsstofnanir. Einnig er mögulegt að nemandi taki lesnámskeið í
samráði við aðalleiðbeinanda sinn og meistaranefnd.
Rannsóknarverkefnið
Rannsóknarverkefnið er stærsti hluti námsins og er ýmist 60 eða 90 ECTS einingar að umfangi. Verkefnið vinnur nemandinn undir handleiðslu eins af sérfræðingum skólans, en auk aðalleiðbeinanda eru einnig kallaðir til einn til tveir ráðgefandi sérfræðingar, gjarnan utan skólans, sem tryggja að verkefnið standist alþjóðlegar gæðakröfur. Verkefninu lýkur með opinni vörn og skilum meistararitgerðar sem að jafnaði er rituð á ensku.
Samstarfsstofnanir
Samstarfsstofnanir viðskiptadeildar HA í meistaranáminu eru m.a. Háskóli Íslands, Rannsókna- og þróunarmiðstöð
Háskólans á Akureyri og Rannsóknarmiðstöð ferðamála.
Erlend tengsl
Að öllu jöfnu taka meistaranemar í viðskiptafræðum hluta náms síns við aðra háskóla eða aðrar samstarfsstofnanir,
gjarnan í formi náms- og starfsdvalar. Í sumum tilvikum eru einnig tekin námskeið við erlenda háskóla. Þetta fyrirkomulag tryggir nemendum
aðgengi að hinu alþjóðlega rannsóknarsamfélagi.
Inntökuskilyrði
Almenn krafa er að umsækjendur hafi lokið B.S.-námi í viðskiptafræðum við viðurkennda háskóla, að jafnaði með fyrstu
einkunn. Einnig verður litið til starfsreynslu við val á nemendum. Sjávarútvegsfræðingar sem hafa lokið fjögurra ára B.S.-námi geta
einnig fengið inngöngu. Þeir sem lokið hafa bakkalárgráðu í öðru námi við viðurkennda háskóla þurfa að hafa
lokið 66 ECTS eininga kjarnanámskeiðum í viðskiptafræðum til að geta hafið meistaranám í viðskiptafræðum við deildina.
Þetta fyrirkomulag tryggir nemendum aðgengi að hinu alþjóðlega rannsóknarsamfélagi.
|
„Uppsetning námsins er sérstaklega áhugaverð og gefur svigrúm varðandi skipulagningu og dreifingu á vinnuálagi. Þannig verður fær leið fyrir þá sem vilja bæta við sig menntun samhliða vinnu auk þess sem það eykur gildi námsins að þarna kemur saman hópur fólks úr atvinnulífinu sem m.a. getur deilt eigin reynslu í gegnum verkefnavinnu.“ Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir |
|
|
|
„The students were knowledgeable and engaged. Their coursework had led them to grapple with the issues firms face in the global economy and come up with workable solutions. I was also impressed by the caliber of the faculty and the facilities.“ Melissa Johns |


