Nú eru línur óðum að skýrast hvað varðar skipulagningu brautskráningar- og endurfundaveislu Góðvina, hér að neðan má lesa um það sem á boðstólum verður:
Hvar? Háskólinn á Akureyri við Norðurslóð (Sólborg)
Hvenær? 13. júní 2009
Klukkan hvað? 20:00
Hverjir koma? Nýútskrifaðir, 1, 5, 10, 15 og 20 ára útskriftarhópar og ekki má gleyma gömlum draugum úr fortíðinni sem koma úr röðum starfsfólks við HA :)
Veislustjóri yfir borðhaldi verður fréttamaðurinn síkáti, Gísli Einarsson. Eftir matinn verður borðum sópað til hliðar og þeir Eyþór Ingi Gunnlaugsson (úr Bandinu hans Bubba) og Andri Ívarsson munu halda uppi fjörinu þar til rútur ferja mannskapinn niður í bæ upp úr miðnætti. FSHA býður upp á rautt, hvítt og bjór á meðan birgðir endast en gestum er velkomið að grípa með sér auka söngolíu, auk þess sem Sjallinn verður með útibú á staðnum.
Lesa meira