Nú eru línur óðum að skýrast hvað varðar skipulagningu brautskráningar- og endurfundaveislu Góðvina, hér að neðan má lesa um það sem á boðstólum verður:Hvar? Háskólinn á Akureyri við Norðurslóð (Sólborg)
Hvenær? 13. júní 2009
Klukkan hvað? 20:00
Hverjir koma? Nýútskrifaðir, 1, 5, 10, 15 og 20 ára útskriftarhópar og ekki má gleyma gömlum draugum úr fortíðinni sem koma úr röðum starfsfólks við HA :)
Veislustjóri yfir borðhaldi verður fréttamaðurinn síkáti, Gísli Einarsson. Eftir matinn verður borðum sópað til hliðar og þeir Eyþór Ingi Gunnlaugsson (úr Bandinu hans Bubba) og Andri Ívarsson munu halda uppi fjörinu þar til rútur ferja mannskapinn niður í bæ upp úr miðnætti. FSHA býður upp á rautt, hvítt og bjór á meðan birgðir endast en gestum er velkomið að grípa með sér auka söngolíu, auk þess sem Sjallinn verður með útibú á staðnum.
Matseðill kvöldsins:
Brauðsnitta með hráskinku og basilolíu
Brauðsnitta með anísgröfnu nautakjöti og parmesanosti
Brauðsnitta með saltfiski og Catalóníusósu
Brauðskeljar með graflaxi og sinnepssósu
Skeiðar með sjávarfantasíu
Brauðskeljar með laxatartar
Sjávarréttaskjóður
Grilluð kjúklingaspjót
Blönduð marsipanstykki
Vanillufylltar vatnsdeigsbollur
Ávaxtabakki
Miðaverð er aðeins 2.500 krónur. Innifalið í verði: Veitingar, skemmtiatriði, gleði og gaman. Áhugasamir eru beðnir um að skrá sig á netfangið dagmar@unak.is fyrir 5. júní 2009. Vinsamlegast greiðið miðann með því að leggja inn á reikning Góðvina (1145-05-442376 kt. 520687-1229).
Nú er kjörið tækifæri að hitta vini og kunningja úr háskólanum og komast að því hvað menn hafa haft fyrir stafni frá útskrift. Einnig er hægt að skoða þær breytingar sem hafa orðið á háskólasvæðinu á síðustu árum. Makar eru velkomnir.
Frekari upplýsingar veitir Dagmar Ýr Stefánsdóttir, starfsmaður Góðvina í síma 862-1084.
Vonumst til að sjá sem flesta,
Stjórn Góðvina


