Útskriftarveisla og endurfundir í Sjallanum 10. júní 2006
Að kvöldi brautskráningardags 10. júní 2006 efndu Góðvinir Háskólans á Akureyri í samstarfi við Félag stúdenta HA til endurfunda brautskráðra nemenda og útskriftarfagnaðar í Sjallanum. Dagskráin hófst með fordrykk og léttum veitingum, en síðar um kvöldið voru flutt ávörp og skemmtiatriði og að lokum var dansleikur með Sérsveitinni. Þetta er í fyrsta skipti sem efnt er til hátíðar af þessu tagi við Háskólann á Akureyri, en það er von stjórnar Góðvina að nú sé tekið fyrsta skrefið að því að festa hátíðina í sessi sem hefð.





