Í þessu námi munu nemendur hafa öðlast dýpri þekkingu og sérhæfingu á sviði stjórnunar innan
heilbrigðisþjónustunnar. Þessi þekking mun nýtast einstaklingum vel í umhverfi sem þeir þurfa að glíma
við í rekstri deilda, fyrirtækja og stofnana í dag.
Markmið námsins er að þeir sem útskrifast úr náminu verði gagnrýnir greinendur, ígrundandi fagmenn, breytingarliðar og
víðsýnir og skapandi leiðtogar. Þetta eru þeir námskrárþræðir sem verða rauðu þræðirnir í
uppbyggingu og innihaldi námskeiða og verður leiðarljós í kennsluháttum og námsmati. Þá verður í öllum
námskeiðum lögð áhersla á mikilvægi rannsókna.
| Námskeið í 40 eininga diplómanáminu | Námskeið í 120 eininga meistaranáminu |
| SRI0105 Stjórnun, rekstur og ígrundun 10 ein. FÁR3105 Forysta og árangur 10 ein. AMÞ3105 Alþjóðleg mannauðs- og þekkingarstjórnun 10 ein. HHS0105 Heilbrigði og heilbrigðisþjónusta: Staða, stefnur og straumar 10 ein. EIR0155 Eigindlegar rannsóknir 10 ein. eða MER0155 Megindlegar rannsóknir 10 ein. |
SRI0105 Stjórnun,
rekstur og ígrundun 10 ein. FÁR3105 Forysta og árangur 10 ein. AMÞ3105 Alþjóðleg mannauðs- og þekkingarstjórnun 10 ein. HHS0105 Heilbrigði og heilbrigðisþjónusta: Staða, stefnur og straumar 10 ein. EIR0155 Eigindlegar rannsóknir 10 ein. MER0155 Megindlegar rannsóknir 10 ein. MPR0130 Meistararannsókn 60 ein. |
| Sjá ítarlega náms- og kennsluskrá | |
|
„Við Háskólann á Akureyri er mjög áhugaverður kostur í boði fyrir stjórnendur heilbrigðisstofnana. Námið er hagnýtt frá fyrsta degi á sama tíma og faglegar kröfur eru miklar. “ Þröstur Óskarsson |
![]() |



