Frá og með haustinu 2008 er boðið upp á fjarnám í iðjuþjálfunarfræði með
kennslulotum á Akureyri. Með þessu móti er hægt að stunda nám í iðjuþjálfun hvar sem er á landinu, óháð
búsetu. Eftir samkeppnispróf í desember er reiknað með að heildartala nemenda á fyrsta ári á vormisseri verði 25.
Háskólinn á Akureyri er eina íslenska menntastofnunin sem býður upp á nám í iðjuþjálfun. Áherslur og námsefni eru sótt til iðjuvísinda, heilbrigðisvísinda, raunvísinda og félagsvísinda. Nám til B.S. prófs í iðjuþjálfunarfræði tekur 4 ár. Inntökuskilyrði eru að öllu jöfnu stúdentspróf eða sambærileg menntun. Námið er markviss undirbúningur undir þau fjölbreyttu störf sem iðjuþjálfar sinna innan heilbrigðis- og félagsþjónustu, í skólakerfinu og á almenntum markaði.
Nám og kennsla
Fjarnemar eru í „sjálfsnámi" milli þess sem þeir eru í kennslulotum á Akureyri. Námsefni verður aðgengilegt á netinu.
Í einhverjum tilvikum verða kennslustundir fyrir staðarnema sendar út beint eða teknar upp og gerðar aðgengilegar á vefnum. Í lotum sækja
fjarnemar tíma með staðarnemum þar sem megináhersla verður lögð á verklega þjálfun og umræður. Loturnar verða u.þ.b.
vikulangar einu sinni til tvisvar á misseri.
Hópastærðir
Ekki er gerð krafa um tiltekinn fjölda nemenda á hverjum stað, en það er kostur fyrir nemendur ef þeir geta stundað námið saman og notið
þeirrar aðstöðu sem er að finna hjá fræðslu- og símenntunarmiðstöðum sem eru í samstarfi við HA.
Upplýsingar
Nánari upplýsingar veita Kristjana Fenger, formaður iðjuþjálfunarfræðideildar, sími 460 8469, kfenger@unak.is og Lára Ósk Garðarsdóttir skrifstofustjóri heilbrigðisvísindasviðs í síma 460 8036/larag@unak.is.


