Háskólinn á Akureyri

Framhaldsnám í heilbrigðisvísindum við Háskólann á Akureyri er þverfaglegt diplómu- og

Diplómu- og meistaranám í heilbrigđisvísindum

Framhaldsnám í heilbrigðisvísindum við Háskólann á Akureyri er þverfaglegt diplómu- og meistaranám. Lögð er áhersla á frelsi nemanda til að velja sér áherslur og að hann fái ráðgjöf við valið. Meistaranámið veitir prófgráðuna M.S. í heilbrigðisvísindum (120 ein.) og diplómunámið Dipl. í heilbrigðis vísindum (40 ein.).

Kennsluhættir og -tilhögun
Áhersla er á virkni nemenda og umræður. Að jafnaði eru verkefni í stað prófa. Kennt er í lotum og námið skipulagt þannig að stunda megi vinnu með því. Yfirleitt standa tveir sérfræðingar að hverju námskeiði og þar með fá nemendur meiri hugmynda- og þekkingarfræðilega breidd í námi sínu en ella. Námslotur eru fjórar á hverju misseri. Forsenda fyrir gagnrýnni umræðu er að nemendur mæti í loturnar, það auðveldar alla verkefnavinnu og auk þess kynnast þeir hver öðrum og kennurum sínum. Opin málþing eða ráðstefnur eru haldin í tengslum við mörg námskeiðin.

Heilbrigðisvísindasvið HA er í samstarfi við Norræna heilsuháskólann í Gautaborg (NGV) og nemendum í framhaldsnámi i heilbrigðisvísindum gefst kostur á að taka tiltekin valnámskeið ytra, í samkomulagi við yfirmann fræðasviðs og með hliðsjón af matsreglum deildarinnar. Meðfylgjandi er heimasíða NHV www.nhv.se/diplomprogram

Til viðbótar almennu framhaldsnámi í heilbrigðisvísindum eru boðnar námsleiðir þar sem nemendum gefst kostur á að leggja áherslu á öldrun og heilbrigði, fötlun og endurhæfingu, krabbamein og líknandi meðferð, langvinn veikindi og stjórnun í heilbrigðisþjónustunni.

Dr. Sigríður Halldórsdóttir, prófessor leiðir almennt svið. Nemendur velja sér þema þegar þeir eru búnir með tvö námskeið í náminu og taka valnámskeið til að undirbyggja meistaraverkefni sitt.

Dr. Sólveig Ása Árnadóttir, dósent leiðir fræðasviðið um öldrun. Kjarnanámskeiðið í því námi er Öldrun og heilbrigði í íslensku samfélagi, þar sem sjónum er beint að heilbrigði, virkni og vellíðan aldraðra.

Dr. Árún Kristín Sigurðardóttir, prófessor og forseti heilbrigðisvísindasviðs leiðir fræðasvið með áherslu á langvinna sjúkdóma. Kjarnanámskeiðið í því námi er Langvinnir sjúkdómar og lífsglíman.

Dr. Snæfríður Þóra Egilson, prófessor (með áherslu á börn, ungmenni og fjölskyldur þeirra), og Guðrún Pálmadóttir, dósent, (með áherslu á endurhæfingu og eflingu fullorðinna) leiða Fræðasvið um fötlun og endurhæfingu. Kjarnanámskeiðin á því sérsviði eru Endurhæfing, efling og lífgæði og Fötlun og samfélag. 

Dr. Elísabet Hjörleifsdóttir, dósent, leiðir fræðasvið með áherslu á krabbamein og líknandi meðferð og ber kjarnanámskeiðið í því námi sama heiti, þ.e. Krabbamein og líknandi meðferð.

Dr. Sigrún Gunnarsdóttir, leiðir fræðasvið á sviði stjórnunar innan heilbrigðisþjónustunnar, með áherslu á þjónandi forystu. Kjarnanámskeiðið á þeirri námsleið er Þjónandi forysta, stjórnun og ígrundun.

Skyldunámskeið
í meistaranámi
Valnámskeið
skólaárið 2012-2013
Valnámskeið
skólaárið 2013-2014

Eigindlegar rannsóknir
(Hvert haust)

Heilbrigði og heilbrigðisþjónusta:
Staða, stefnur og straumar
(Hvert haust)

Megindlegar rannsóknir
(Hvert vor)

Fötlun og samfélag
(haust 2012)

Langvinnir sjúkdómar og lífsglíman
(vor 2013)

Öldrun og heilbrigði í íslensku samfélagi
(vor 2013)


Krabbamein og líknandi meðferð
(haust 2013)

Endurhæfing, efling og lífsgæði
(vor 2014)

Þjónandi forysta, stjórnun og ígrundun
(vor 2014)

Sjá ítarlega náms- og kennsluskrá
Birt með fyrirvara um breytingu á námskrá

 

„Námið er vel skipulagt og samþætting milli námslota einstaklega góð. Kennararnir koma úr hinum ýmsu fagstéttum og eru með ólíka menntun og starfsreynslu. Þetta hefur í för með sér að mismunandi sjónarhorn koma fram sem skapar grundvöll fyrir áhugaverðar og lærdómsríkar umræður. Töluverður sveigjanleiki er við val á verkefnatengdum viðfangsefnum og því gefst nemendum gott tækifæri til að tengja efni námskeiðs við eigin áherslur og áhugasvið í námi.“

Sólrún Óladóttir
iðjuþjálfi og meistaranemi í heilbrigðisvísindum

 

Deildarformaður framhaldsnámsdeildar er:
Dr. Sigríður Halldórsdóttir, prófessor sigridur@unak.is
Blar Gulur Hvitur
A A A
Helga Sif Eiđsdóttir

„Viđskiptafrćđinámiđ í HA er krefjandi en jafnframt skemmtilegt og áhugavert. “

Helga Sif Eiđsdóttir viđskiptafrćđingur
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf