Nám í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri fer fram í hjúkrunarfræðideild. Nám til B.S.-prófs í hjúkrunarfræði tekur fjögur ár. Inntökuskilyrði er að öllu jöfnu stúdentspróf eða sambærileg menntun. Hjúkrunarfræðideild hefur markað þá stefnu að taka sjúkraliða inn í hjúkrunarfræði sem eru 25 ára eða eldri og hafa að lágmarki fimm ára starfsreynslu sem sjúkraliðar. Námið er alþjóðlega viðurkennt og veitir aðgang að framhaldsnámi á meistarastigi.
Meginmarkmið hjúkrunarfræðideildar er að mennta einstaklinga í undirstöðugreinum heilbrigðisvísinda í samræmi við þarfir samfélagsins hverju sinni.
Hjúkrunarfræðingar frá Háskólanum á Akureyri eiga að vera faglega færir um að gegna almennum hjúkrunarstörfum, svo og stjórnunar- og fræðslustörfum á flestum sviðum heilbrigðisþjónustu. Atvinnumöguleikar eru fjölbreytilegir hérlendis og erlendis. Námið skiptist í raunvísindi, hug- og félagsvísindagreinar og hjúkrunarfræðigreinar. Klínískt nám hefst strax á fyrsta ári, fer fram á sjúkrastofnunum víða um land og er á fjórum árum samtals 24 vikur.
Fjarnám í hjúkrunarfræði
Það er markmið deildarinnar að hverjum árgangi í staðarnámi fylgi a.m.k. einn hópur fjarnema. Skilyrði fyrir því að fjarkennsla
sé sett á fót er samningur við símenntunarmiðstöð eða hliðstæða aðila á viðkomandi stað og að öllu
jöfnu hefji að lágmarki 17 nemendur námið. Kennslan fer fram með notkun gagnvirks myndfundabúnaðar og kennarar nýta einnig vefnámsumhverfi og
tölvusamskipti. Gert er ráð fyrir að fjarnemar séu í fullu námi líkt og staðarnemar og að þeir komi til kennslu á Akureyri að
lágmarki eina viku á hverju misseri.
Dvöl við erlendan samstarfsháskóla
Heilbrigðisvísindasvið er í samvinnu við skóla víða í Evrópu um nemendaskipti. Þar með er möguleiki fyrir áhugasama
nemendur að stunda klínískt nám að hluta til við samstarfsstofnanir á öðrum Norðurlöndum því
hjúkrunarfræðideildin tekur þátt í Nordplus-samstarf við skóla í Svíþjóð, Finnlandi, Noregi og Danmörku. Nemendur
á þriðja ári í hjúkrunarfræði eiga þess einnig kost að taka hluta af námi sínu við samstarfsháskóla annars
staðar í Evrópu eða í Bandaríkjunum. Þeir geta sótt um að taka eitt misseri eða heilt skólaár. Til þess þarf
náið samráð við formann hjúkrunarfræðideildar og velja þarf öll námskeið með samþykki skólans.
Alþjóðafulltrúi HA aðstoðar nemendur við að sækja um námspláss, húsnæði og nemendastyrk.
Hafdís Skúladóttir, MSc í hjúkrunarfræði
hafdis@unak.is - s: 460 8456, fax: 460 8999
|
„Ástæðan fyrir því að ég kaus að leggja stund á nám í hjúkrunarfræði er sú að mér finnst hjúkrun vera heillandi starf sem opnar fjölmargar dyr. Að námi loknu bíða mín spennandi tækifæri. Háskólinn á Akureyri er góður í alla staði, fámennir bekkir eru sérlegur kostur, þeir gera það að verkum að námið verður persónulegt og góð tengsl myndast milli nemenda og kennara.“ Lára Kristín Jónsdóttir |
![]() |



