Háskólinn á Akureyri

Mbl. 21. júní 2002Er einn örfárra karla í faginu hér á landiFínt að vinna í

Sigurður Sigursteinsson

Mbl. 21. júní 2002

Er einn örfárra karla í faginu hér á landi
Fínt að vinna í kvennaskaranum
Sigurður SigursteinssonFÓTBOLTAMAÐURINN Sigurður Sigursteinsson er einn af einungis fjórum karlmönnum á landinu sem tilheyra iðjuþjálfastéttinni, að eigin sögn. Hann starfar við sjúkrahúsið og heilsugæslustöðina á Akranesi m.a. við iðjuþjálfun barna en lék einnig fótbolta með ÍA, og varð Íslandsmeistari með liðinu í fyrra, þar til fyrir tveimur mánuðum er hann hætti vegna vinnu. "Þetta eru gjörólíkir heimar, fótboltinn er mikið karlaveldi og fólk er oft undrandi þegar það heyrir að ég sé iðjuþjálfi sem er alger kvennastétt. Oft er líka grínast með þetta á góðlátlegan hátt í vinahópnum."
En hvernig datt honum í hug að læra iðjuþjálfun? "Ævintýramennska dró mig út í þetta og líka leist mér vel á hve fagið er fjölbreytt, það er svo margt hægt að gera við menntunina."
Sigurður telur nauðsynlegt að fá fleiri karla inn í stéttina. "Okkur vantar þá sýn sem fleiri karlmenn myndu koma með inn í fagið. Vegna þess hvað þetta er mikil kvennastétt hefur starfið og þær athafnir sem við notum í þjálfun mótast af konum og við þurfum fleiri karla inn til að breyta því. Meiri blöndun væri mjög til góða."

Konurnar með fullkomnunarþörf
Sigurður vann þrjú ár á Reykjalundi og var hann þar eini karlinn sem var iðjuþjálfi í hópi næstum tuttugu kvenna. Hann segir að sér hafi liðið vel í öllum kvennaskaranum. "Það var heilmikil lífsreynsla og virkilega gaman. Það voru auðvitað karlar í öðrum stéttum á stofnuninni svo ég gat bara farið til þeirra ef ég vildi félagsskap karla."
Hann segir töluverðan mun á því að vera í karlaheimi eins og í fótboltanum og svo eingöngu með konum. "Helsti munurinn er að konur leggja yfirleitt margfalt meira á sig en karlarnir, allt verður að vera svo flott og fullkomið hjá þeim. Karlar eru meira á því að hlutirnir muni bara reddast einhvern veginn. Samt eru konurnar svo miklu gagnrýnni á sjálfar sig ef þeim finnst þær ekki hafa gert eitthvað nógu vel."

Draumurinn að geta opnað eigin stofu
Sigurður er ósáttur við þá ímynd sem hann telur fagið hafa, segir að margir haldi að það snúist um eilíft föndur og handavinnu sem sé afar röng mynd og að breyta þurfi ímynd fagsins til að fá fleiri karlmenn í það. "Hægt er að velja um margskonar svið. Til dæmis að vinna með börnum, fólki með geðræn vandamál, þróa hjálpartæki og skoða líkamsbeitingu eða taka út vinnuaðstöðu í fyrirtækjum."
Hann bendir á að þegar hann hafi unnið á Reykjalundi hafi hann prófað fjögur mismunandi svið á þremur árum, geðsvið, gigtarsvið, lungnasvið og verkjasvið. "Mér finnst fjölbreytnin afskaplega mikill kostur við starfið.Hægt er að kynnast svo mörgum ólíkum sviðum og ef mann langar til að breyta til þá er það svo auðvelt."
Hann segir að draumurinn hjá sér sé að vinna sjálfstætt. "Ég myndi vilja geta opnað eigin stofu þar sem ég myndi sinna skjólstæðingum með margskonar vandamál. Eins og nú háttar til er það nánast ógerlegt af því að Tryggingastofnun borgar ekki hlut skjólstæðinga iðjuþjálfa. Samt eru ákvæði um slíkt í lögum."
Sigurður hvetur að lokum karlmenn til að kynna sér fagið þar sem það bjóði upp á mikla fjölbreytni.

Blar Gulur Hvitur
A A A
Helga Sif Eiðsdóttir

„Viðskiptafræðinámið í HA er krefjandi en jafnframt skemmtilegt og áhugavert. “

Helga Sif Eiðsdóttir viðskiptafræðingur
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf