Háskólinn á Akureyri

{{sxs parseStefTag(283)}}Námið skiptist í raunvísindi, hug- og félagsvísindagreinar, heilbrigðisvísindi

Iđjuţjálfun

Iðjuþjálfun

Markmiđ og veganesti nemenda

Meginmarkmið iðjuþjálfunarbrautar er að miðla til nemenda þeirri þekkingu, viðhorfum og færni sem er í takt við stöðu og þróun iðjuþjálfunar á hverjum tíma og stuðlar að gæðaþjónustu fyrir neytendur. Lögð er áhersla á að samþætta hinar ýmsu greinar námsins þannig að nemendur öðlist sem dýpstan skilning á samspili iðju, manns og umhverfis. Iðjuþjálfar frá Háskólanum á Akureyri eru faglega færir um að takast á við margvísleg verkefni á sviði iðjuþjálfunar innan heilbrigðis- og félagsþjónustu. Mikill skortur er á iðjuþjálfum á Íslandi og atvinnumöguleikar margvíslegir innan og utan hefðbundinna heilbrigðisstofnana, í skólum, á vinnustöðum, hjá félagasamtökum og víðar. Ýmsir möguleikar eru á framhaldsnámi í iðjuþjálfun.

Sérstaða iðjuþjálfunarbrautar
Ekki er hægt að nema iðjuþjálfun annars staðar hér á landi. Lögð er áhersla á að mennta iðjuþjálfa til starfa í þjóðfélagi framtíðarinnar. Námið tekur mið af þörfum íslenska heilbrigðiskerfisins, jafnframt því að mæta alþjóðlegum staðli. Lögð er áhersla á að nemendur séu virkir þátttakendur í þróun og samstarfi er varðar iðjuþjálfun hér á landi og á alþjóðlegum vettvangi. Vettvangsnám hefst á vormisseri 2. árs og fer fram undir handleiðslu starfandi iðjuþjálfa víðsvegar um landið.

Nemandi verður að ljúka fyrri hluta námsins, þ.e. námsefni 1. og 2. árs, áður en nám er hafið á 3. ári. Hámarkstími til lokaprófs er 6 ár, 3 ár til að ljúka hvorum hluta. Nemandi sem ekki stenst lámarkskröfur í vettvangsnámi þarf að endurtaka námstímabilið. Einungis er hægt að endurtaka hvert námstímabil einu sinni. Tímabilið skal endurtekið á sama starfssviði en á öðrum vettvangsnámsstað. Endurtekning námstímabils á vettvangi kann að valda seinkun á brautskráningu. Iðjuþjálfunarbraut er í samvinnu við nokkra skóla á Norðurlöndum og einn í Kanada um nemendaskipti og því er möguleiki á því fyrir áhugasama nemendur að stunda vettvangsnám að hluta til erlendis.

Fjarnám í iðjuþjálfun
Boðið er uppá fjarnám í iðjuþjálfun sem fer fram á netinu og því óháð búsetu nemenda. Nemendum er skylt að mæta í staðbundnar lotur eina til tvær vikur á önn og sækja þá tíma með staðarnemum.

Sérskipulagt B.S.-nám í iðjuþjálfun
Sérskipulagt B.S.-nám í iðjuþjálfun fyrir starfandi iðjuþjálfa án slíkrar prófgráðu var starfrækt árin 2003-2006. Námið var 60 ECTS og nemendur luku því ýmist á 2 eða 3 árum. Ekki er fyrirhugað að sinni að bjóða upp á þessa sérhönnuðu námsleið aftur, en kennarar heilbrigðisdeildar eru tilbúnir til að skoða mögulegar námsleiðir fyrir iðjuþjálfa sem hafa áhuga á að bæta við menntun sína.


Námið skiptist í raunvísindi, hug- og félagsvísindagreinar, heilbrigðisvísindi og iðjuvísindi.
Vettvangsnám er 25 vikur og hefst í lok 1. námsárs 

Formaður iðjuþjálfunarfræðideildar:
Kristjana Fenger, M.Sc í iðjuþjálfun
kfenger@unak.is, s: 460 8469, fax: 460 8999

Blar Gulur Hvitur
A A A
Hjörtur Ágústsson

„Ég flutti frá Reykjavík til Akureyrar til ađ stunda nám í nútímafrćđi. Námiđ var lćrdómsríkt ekki síst ferđ mín til Indlands í skiptinám. “

Hjörtur Ágústsson kynningarfulltrúi hjá Evrópu unga fólksins
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf