2005 - 2007
Heilsuklasi Vaxtarsamnings Eyjafjarðarsvæðis.
Hinn 15. febrúar 2005 var gerður verksamningur milli Heilbrigðisvísindastofnunar og Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar (AFE) þar sem stofnunin tekur að sér stjórn og yfirumsjón með störfum heilsuklasa í Vaxtarsamningi Eyjafjarðar. Verkið er unnið í samráði við framkvæmdaaðila Vaxtarsamningsins og undir yfirumsjón verkefnisstjóra AFE.
Vinnan við heilsuklasann er viðamikið verkefni þar sem megin markmiðið er að fá fyrirtæki og stofnanir í heilsu- og heilbrigðistengdri starfsemi á Eyjafjarðarsvæðinu og nágrannasveitum til að vinna saman. Með auknu samstarfi þeirra er horft til þess að samnýta þann mannauð, þekkingu og kraft sem til er innan heilbrigðisgeirans til þess að efla núverandi starf, auka nýsköpun og auðvelda framgang nýrra arðbærra verkefna.
Nánari upplýsingar um verkefnið eru að finna á www.klasar.is


