Háskólinn á Akureyri

Kennarafræði B.Ed.Nám til B.Ed.-gráðu í kennarafræði er fullt þriggja ára nám, 180

Kennarafrćđi

Kennarafræði B.Ed.
Nám til B.Ed.-gráðu í kennarafræði er fullt þriggja ára nám, 180 einingar, og er jafnframt fyrri hluti fimm ára náms til M.Ed.-gráðu sem er forsenda kennsluréttinda. Að aflokinni B.Ed.-gráðu geta nemendur einnig valið að innrita sig í tveggja ára meistaranám í menntavísindum til M.A.-gráðu.

Kennsluhættir og -tilhögun
Fyrsta námsár í fimm ára náminu er sameiginlegt öllum nemendum. Á öðru námsári velja nemendur sér leið og hefst þá sérhæfing þeirra með hliðsjón af því skólastigi sem þeir hyggjast starfa á. Í skipulagi námsins er m eð yngsta stigi átt við leikskóla og 1.-3. bekk grunnskóla; miðstig vísar til grunnskóla og elsta stig til 8.-10. bekkjar grunnskóla og byrjunaráfanga framhaldsskólans. Á þriðja námsári auka nemendur enn frekar við sérhæfingu sína með vali á kjörsviði. Þrjú kjörsvið eru í boði innan kennaradeildar HA en nemendum stendur jafnframt til boða að leita kjörsviðssérhæfingar innan annarra deilda hug- og félagsvísindasviðs eða annarra sviða/deilda innan eða utan HA.

Þeir sem velja yngsta stig geta að námi loknu sótt um leyfisbréf leikskólakennara sem veitir jafnframt heimild til kennslu í 1.-3. bekk grunnskóla. Þeir sem velja miðstig geta sótt um leyfisbréf grunnskólakennara. Þeir sem velja efsta stig geta sótt um leyfisbréf grunnskólakennara sem veitir jafnframt heimild til kennslu í byrjunaráföngum framhaldsskólans að uppfylltum skilyrðum laga. Mennta- og menningarmálaráðuneyti veitir leyfisbréf til kennslu

„Mér fannst kennaranámið við HA mjög áhugavert og sé ekki eftir því að hafa valið það. Ég ætla að sérhæfa mig í kennslu fyrir efsta stig grunnskóla og hlakka til að takast á við þá vinnu í framtíðinni.“

Valgerður Reykjalín
kennarafræðinemi 

 

Félagslíf nemenda
Nemendur í kennaradeild á hug- og félagvísindasviði HA eiga sér nemendafélag sem nefnist Magister. Félagið stendur fyrir ýmsum uppákomum, ýmist á eigin vegum eða innan ramma starfsemi Félags stúdenta við Háskólann á Akureyri (FSHA). Má þar nefna vísindaferðir, sprellmót, kaffihúsakvöld og ýmislegt fleira í þeim dúr. Nánari upplýsingar eru á www.fsha.is/magister/









 

Blar Gulur Hvitur
A A A
María Einarsdóttir

„Ţetta er lítill og persónulegur háskóli ţar sem ţú ert ekki einn af hundrađ í bekk, ţess vegna fćr mađur mikiđ út úr náminu.“

María Einarsdóttir nemandi í iđjuţjálfunarfrćđi
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf