Háskólinn á Akureyri
býður upp á 180 ECTS eininga nám í sálfræði til B.A.-gráðu. Sálfræði er vísindagrein þar sem lögð er
áhersla á að skilja mannlega hegðun, hugsun og tilfnningar. Í náminu til B.A.-prófs öðlast nemendur grunnþekkingu á kenningum og
rannsóknaraðferðum hinna mismunandi sviða sálfræðinnar. Námið er fjölbreytilegt og veitir góðan grunn til ýmissa starfa að
því loknu. Til að öðlast starfsréttindi sem sálfræðingur þarf að ljúka framhaldsnámi í greininni, en B.A. -próf
í sálfræði veitir nauðsynlegan grunn fyrir slíkt nám og framhaldsnám í tengdum greinum.
Kostir námsins
Sálfræði við Háskólann
á Akureyri er spennandi valkostur þar sem boðið er upp á fræðilegt og krefjandi nám. Nemendur öðlast færni í aðferðum
rannsókna, meðal annars með því að taka virkan þátt í rannsóknum með kennurum. Mikil áhersla er lögð á virka
umræðu meðal nemenda og kennara. Þannig þjálfast nemendur í gagnrýnni hugsun. Nemendur hafa möguleika á að laga námið að
sínu áhugasviði í gegnum verkefni og ritgerðir. Notað er símat sem gerir nemendum kleift að fylgjast reglubundið með frammistöðu
sinni.
Símat
Námsmatið byggir á símatsstefnu, sem þýðir að
námskeiðum lýkur helst ekki með einu stóru prófi heldur byggir það á eftirfarandi atriðum:
• Hlutaprófum
• Verkefnum
• Umræðum
• Verklegum æfingum
• Sýnikennslu
• Tilraunum og rannsóknum á vettvangi
Með þessu móti geta nemendur fylgst vel með eigin árangri en jafnframt krefst þetta jafnrar ástundunar þeirra. Hins vegar eru ýmis námskeið samkennd með öðrum deildum eða öðrum námslínum, einkum á fyrsta ári, þannig að ætíð verða einhverjar undantekningar frá símatsstefnunni.
Kennarar í sálfræði við Háskólann á
Akureyri
Kennarar í sálfræði við HA eru öflugir og í miklum tengslum við fræðimenn og sérfræðinga við
háskóla hér á landi og erlendis. Fjölbreyttar rannsóknir eru stundaðar ýmsum sviðum sálfræðinnar, þar sem nemendum
á lokastigum námsins gefst oft kostur á að taka þátt. Helstu sérsvið kennara í sálfræði eru þessi:
|
• Klínísk sálfræði |
• Atferlisgreining |
|
„Sálfræði við Háskólann á Akureyri er spennandi og krefjandi nám. Námskeiðin eru áhugaverð og fjölbreytt þar sem maður fær tækifæri til þess að kynnast festum sviðum sálfræðinnar. Kennararnir eru framúrskarandi og metnaðarfullir og gera ríkar kröfur til nemenda sinna. Einnig er gott skipulag á námsfyrirkomulaginu. Símatið gerir það að verkum að stór lokapróf heyra sögunni til. Álag er jafnt og þétt sem veitir gott aðhald og heldur manni vel við efnið. Smæðin er svo án efa kostur, maður fær tækifæri til að kynnast samnemendum vel og gott aðgengi er að kennurum. Mæli hiklaust með þessu námi.“ Kristján Sturluson |
|


