Almennt um kennaradeild Háskólans á Akureyri
Kennaradeild á hug- og félagsvísindasviði býður upp á nám í kennarafræði (B.Ed.), í menntunarfræði (M.Ed. og viðbótarnám) og í menntavísindum (M.A. og viðbótarnám). Nám í kennaradeild miðaðar annars vegar að því að mennta kennara til starfa í leikskóla, grunnskóla eða framhaldsskóla og hins vegar er boðið upp á framhaldsnám í menntavísindum.
Markmið deildarinnar er að mennta kennara sem hafa örugga þekkingu á undirstöðuþáttum kennarastarfsins og geta tekist á hendur það hlutverk sem kennsla leggur þeim á herðar um leið og þeir eru færir um að þróa og móta skóla sem menntasamfélag í síkviku umhverfi. Námi í kennaradeild er í meginatriðum skipt í tvær leiðir.
Í fyrsta lagi býður deildin upp á heildstætt fimm ára kennaranám er tekur mið af lögum um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla nr. 87/2008. Námið skiptist í þriggja ára nám í kennarafræði til B.Ed.-gráðu (180 ECTS) og tveggja ára framhaldsnám í menntunarfræði til M.Ed.-gráðu (120 ECTS). Þeir sem lokið hafa BA eða BS prófi á öðrum námssviðum geta innritast í M.Ed.-nám og lokið meistaraprófi í menntunarfræði. Að M.Ed.-prófi loknu geta nemar sótt um leyfisbréf á því skólastigi sem þeir hafa sérhæft sig á til mennta- og menningarmálaráðuneytis. Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér lög og reglugerðir er varða menntun kennara s.s. lög nr. 87/2008 ásamt reglugerðum nr. 241/2009 og 872/2009.
Í öðru lagi er boðið upp á nám í menntavísindum fyrir þá sem vilja sérhæfa sig á tilteknum sviðummennta sig til ýmissa starfa í menntakerfinu eða stunda rannsóknir og fræðistörf í menntavísindum. Námið er skipulagt sem 120 eininga meistaranám og lýkur með M.A.-prófi.
Í stað meistaraprófs í menntunarfræði eða menntavísindum er hægt að ljúka 60 ECTS viðbótarprófi á meistarastigi á hvorri námsbrautinni sem er.
Skrifstofa kennaradeildar netfang: kennaradeild@unak.is
Sólborg v/Norðurslóð
600 Akureyri
Afgreiðsla háskólans er á Sólborg og er opin kl. 8:00 - 16:00 alla virka daga.
Forseti hug- og félagsvísindasviðs:
Sigurður Kristinsson, sími: 460 8651, netfang: sigkr@unak.is
Deildarformaður:
Anna Þóra Baldursdóttir, lektor, sími: 460 8552, netfang: anna@unak.is
Brautarstjóri kennarabrautar:
Anna Elísa Hreiðarsdóttir, lektor, sími: 460 8555, netfang: annaelisa@unak.is
Brautarstjóri framhaldsbrautar:
Trausti Þorsteinsson, lektor, sími: 460 8560, netfang: trausti@unak.is
Formaður matsnefndar:
Halldóra Haraldsdóttir, dósent, sími: 460 8578, netfang hh@unak.is
Formaður námsnefndar:
María Steingrímsdóttir, lektor, sími: 460 8562, netfang: maria@unak.is
Forstöðumaður miðstöðvar skólaþróunar:
Birna María Svanbjörnsdóttir, lektor, sími: 460 8579, netfang: birnas@unak.is
Umsjónarmaður alþjóðasamskipta:
Markus Meckl, lektor, sími: 460 8655, netfang: markus@unak.is
Skrifstofustjóri:
Heiða Kristín Jónsdóttir, sími: 460 8039, netfang: heida@unak.is
Deildarstjóri:
Torfhildur S. Þorgeirsdóttir, sími: 460 8042, netfang: torfhild@unak.is fax: 460 8999


