Háskólinn á Akureyri

Hlutverk Háskólans á Akureyri er ađ veita nemendum tćkifćri til menntunar í metnađarfullu og alţjóđlegu náms- og rannsóknarumhverfi. Háskólinn skapar frćđimönnum sínum umhverfi og ađstöđu til rannsókna og nýsköpunar sem stuđlar ađ vexti og framţróun íslensks samfélags og veitir inn í ţađ nýjum straumum. Háskólinn leggur áherslu á gagnvirk tengsl viđ atvinnulífiđ.

Kennaradeild

Almennt um kennaradeild Háskólans á Akureyri

Fletta kynningarbæklingi 2009

Í kennaradeild er boðið upp á fimm ára kennaranám til M.Ed.-gráðu skv. lögum nr. 87/2008 um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla. Fyrri hluti námsins er er þriggja ára nám í kennarafræðum til B.Ed.-gráðu, samtals 180 einingar. Síðari hluti þessa náms er tveggja ára 120 eininga meistaranám í kennarafræðum sem lýkur með M.Ed.-gráðu. Að því loknu sækja nemendur um kennsluréttindi til menntamálaráðuneytis.

Á tímabilinu 2009–2011 er boðið upp á nám til kennsluréttinda fyrir þá sem lokið hafa bakkalárprófi eða sambærilegu. Nemendur þurfa ýmist að ljúka 30 eða 60 eininga námi. Námslengd veltur m.a. á fyrri menntun og kennslureynslu í samræmi reglugerð nr. 241/2009.

Þá er boðið upp á tveggja ára nám í kennarafræðum til meistaraprófs, M.Ed.-gráðu, sem leiðir til kennsluréttinda skv. nýjum lögum nr. 87/2008.

Auk þessa býðst tveggja ára rannsóknartengt 120 eininga meistaranám í menntunarfræðum til M.A.-gráðu. Einnig er unnt að ljúka 60 eininga diplómunámi, Dipl. Ed. Þeir sem þegar hafa kennsluréttindi geta lokið 120 eininga meistaranámi til M.Ed.-gráðu í menntunarfræðum eða 120 eininga rannsóknartengdu meistaranámi í menntunarfræðum til M.A.-gráðu.


Skrifstofa kennaradeildar netfang: kennaradeild@unak.is
Þingvallastræti 23
600 Akureyri

Skrifstofan er opin virka daga frá kl. 8:10 - 12:30 og 13:00 - 16:00 nema þriðjudaga en þá er hún opin kl. 8:10 - 10:00 og 13:00 - 16:00.
Aðalafgreiðsla háskólans er á Sólborg og er hún opin kl. 8:00 - 16:00 alla virka daga.

Forseti hug- og félagsvísindasviðs:
Sigurður Kristinsson, sími: 460 8651, netfang: sigkr@unak.is

Deildarformaður:
Anna Þóra Baldursdóttir, lektor, sími: 460 8552, netfang: anna@unak.is

Brautarstjóri kennaranáms:
Finnur Friðriksson, lektor, sími: 460 8575, netfang: finnurf@unak.is

Brautarstjóri framhaldsnáms:
Rúnar Sigþórsson, prófessor, sími 460 8573, netfang: runar@unak.is

Forstöðumaður skólaþróunarsviðs:
Trausti Þorsteinsson, sími: 460 8560, netfang: trausti@unak.is

Umsjónarmaður alþjóðasamskipta:
Markus Meckl, lektor, sími: 460 8655, netfang: markus@unak.is

Deildarstjóri skrifstofu:
Torfhildur Sigrún Þorgeirsdóttir, sími: 460 8042, netfang: torfhild@unak.is fax: 460 8997

Fulltrúi:
Ingibjörg Smáradóttir, sími: 460 8041, netfang: ingibs@unak.is
  fax: 460 8997

Hægt er að fletta bæklingnum hér að ofan með því að smella á myndina, flett er með örvalyklunum eða með því að smella músinni á horn bæklingsins.

Blar Gulur Hvitur
A A A
Máney Sveinsdóttir

„Nám í líftćkni er ţverfaglegt, ađgengi ađ kennurum er gott og ađstađan til ađ stunda rannsóknir er frábćr. “

Máney Sveinsdóttir líftćknifrćđingur
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf