Inntökuskilyrði eru bakkalárpróf eða sambærileg próf og starfsréttindi á sviði kennslu, þjálfunar og umönnunar. Markmið námsins er að efla nemendur til þess að takast á við störf í menntakerfinu sem krefjast framhaldsmenntunar á sviði menntunarfræða ásamt því að auka hæfni þeirra til þess að stunda frekara nám. Við upphaf náms skráir nemandi sig á tilgreint áherslusvið eða í almennt nám.
Nemandi getur brautskráðst með 60 eininga Dipl.Ed. eða haldið áfram til 120 eininga meistaraprófs og lokið annað hvort rannsóknartengdu meistaranámi til M.A.-gráðu eða meistaranámi í menntunarfræðum til M.Ed.-gráðu. Í diplómunámi eru áherslusvið sett saman úr skyldunámskeiðum áherslusviðs og valnámskeiðum. Krafa er gerð um ákveðna tímasókn í námskeið. Kennsla fer fram í staðbundnum lotum, að jafnaði fjórum sinnum á misseri, en að öðru leyti með breytilegu fjarnámssniði.
|
„Ástæðan fyrir því að ég fór í meistaranám er einföld, ég vildi læra stjórnun skólastofnana þar sem ég starfa við skólastjórnun. Námið er afar heppilegt fyrir mig þar sem ég get stundað það samhliða starfi. Námskeiðin eru fjölbreytt og tengjast starfi mínu. Mikil áhersla er lögð á gagnrýna hugsun, ígrundun og samvinnu. Kennslan er persónuleg og kennararnir leggja sig fram við að aðstoða nemendur eftir fremsta megni.“ Valdimar Víðisson |
![]() |
| Haust | Vor |
|
Áherslusvið: Námskrár- og kennslufræði Lestrarfræði Sérkennslufræði Stjórnun í menntastofnunum |
Áherslusvið: Námskrár- og kennslufræði Lestrarfræði Sérkennslufræði Stjórnun í menntastofnunum Valnámskeið |
| Sjá ítarlega náms- og kennsluskrá | |



