Háskólinn á Akureyri

Reglur um starf náms- og matsnefnda kennaradeildar hug- og félagsvísindasviðs Háskólans á

Reglur náms- og matsnefndar

Reglur um starf náms- og matsnefnda kennaradeildar hug- og félagsvísindasviðs Háskólans á Akureyri

(Samþykktar á deildarfundi 24.08.09)

Náms- og matsnefndir kennaradeildar starfa í umboði deildarfundar. Þær fjalla um nám innan deildarinnar, skipulag þess og inntak, og meta fyrra nám nemenda.

I.   Hlutverk og skipan

  1. Hlutverk náms- og matsnefnda er tvíþætt: a) að ræða og gera tillögur til deildarfundar um námskrá, námsskipan og námsgreinar í deildinni, b) að meta fyrra nám nemenda óski þeir þess.
  2. Í kennaradeild starfa tvær náms- og matsnefndir. Önnur fyrir bakkalárstig og hin fyrir diplómu-, meistara- og kennsluréttindanám. Í hvorri nefnd sitja 3 fastir kennarar deildar og skulu þær kosnar í október til tveggja ára í senn en kjörtímabil nefndanna hefst í janúar Félag nemenda við deildina hefur rétt til að kjósa einn fulltrúa í hvora nefnd. Fulltrúar nemenda taka ekki þátt í störfum nefndanna við mat en hafa málfrelsi og tillögurétt í þeim efnum og fullan þátttökurétt í störfum nefndanna þegar þær fjalla um námsmálefni. Nefndirnar skipta sjálfar með sér verkum.

II.  Námskrá og námsframboð

  1. Náms- og matsnefndir gera tillögu um námskrá deildar þar sem kveðið er á um markmið, inntak og meginviðfangsefni námsins.
  2. Náms- og matsnefndir fjalla um námskrár deildar og þær breytingar sem lagt er til að gerðar séu á þeim og leggja tillögur sínar fyrir deildarfund. Náms- og matsnefndir skulu hafa fullt samráð við umsjónarkennara námskeiða um allar breytingar.
  3. Náms- og matsnefndir skulu fjalla um allt nýtt námsframboð deildar áður en það er lagt fyrir deildarfund.
  4. Náms- og matsnefndir geta haft frumkvæði að breytingum á námskrá og kennsluskrá og að nýju námsframboði.
  5. Allar tillögur náms- og matsnefnda skal leggja fyrir deildarfund.

III.  Fyrra háskólanám nemenda

  1. Nemandi sem lokið hefur námskeiðum við aðrar háskólastofnanir getur sótt um að fá þau metin inn í samsvarandi nám við kennaradeild. Í diplómunámi, meistaranámi og kennsluréttindanámi má að jafnaði aðeins meta helming viðkomandi náms og nemandi á bakkalárstigi skal að jafnaði ljúka sem svarar a.m.k. einu námsári við deildina af þremur.
  2. Náms- og matsnefndir meta hvort fyrra háskólanám nemanda getur komið í stað námskeiða sem kennd eru í kennaradeild hug- og félagsvísindasviðs Háskólans á Akureyri.
  3. Til þess að unnt sé að meta fyrra háskólanám þarf að liggja fyrir skrifleg beiðni nemanda um slíkt mat ásamt staðfestu afriti af vitnisburði frá þeim háskóla eða háskólum þar sem námið sem óskað er eftir að fá metið fór fram. Í matsbeiðninni verður að tilgreina hvaða námskeið við kennaradeild er sótt um að verði metin og hvaða námskeið frá öðrum háskólum geti talist jafngild. Einnig skal fylgja kennsluáætlun þeirra námskeiða sem óskað er eftir að fá metin. Matsbeiðni skal vera undirrituð og í henni verður að koma fram nafn, heimilisfang og kennitala umsækjanda. Senda skal matsbeiðni til skrifstofu kennaradeildar. Skrifstofan heldur til haga öllum gögnum er varða matið.
  4. Náms- og matsnefndir skulu, eftir því sem kostur er á, senda beiðnir, sbr. síðustu grein, til umsagnar umsjónarkennara þeirra námskeiða sem beðið er um að fyrra nám sé metið á móti. Þetta skal gert áður en mat fer fram nema fyrir liggi mat á sams konar umsókn.
  5. Að jafnaði er fyrra nám ekki metið á móti námi í kennaradeild Háskólans á Akureyri séu meira en tíu ár liðin síðan því var lokið. Háskólapróf, embættispróf og önnur lokapróf má viðurkenna sem heildir þótt þau séu eldri hafi umsækjandi starfað á því fagsviði sem menntunin nær til eða skyldu fagsviði a.m.k. þrjú ár af sl. fimm árum.
  6. Fylgt skal þeirri meginreglu að annað hvort sé fyrra nám metið á móti heilu námskeiði eða ekki metið. Til að námskeið sé metið að fullu skal það að jafnaði samsvara a.m.k. 75% af innihaldi þess námskeiðs sem það á að jafngilda, auk þess sem heildareiningafjöldi þess námskeiðs verður að vera a.m.k. jafn mikill. Séu námskeiðshlutar teknir til mats verða þeir að vera skýrt afmarkaðir svo hægt sé að meta þá eftir sömu reglu.   
  7. Stök námskeið úr fyrra háskólanámi fást aðeins metin hafi umsækjandi hlotið í þeim að lágmarki einkunnina 6. Námsheildir úr fyrra námi fást aðeins metnar hafi umsækjandi hlotið í þeim meðaleinkunnina 6 eða hærra.
  8. Náms- og matsnefndum er heimilt að meta heildstætt misserisnám, eða eftir atvikum lengra nám, sem jafngildi samsvarandi náms við kennaradeild hug- og félagsvísindasviðs HA án þess að innihald einstakra námskeiða uppfylli til fulls þau skilyrði sem sett eru í grein II.6. Skilyrði fyrir þessu mati er að fyrra námið sé á sömu eða sambærilegum sviðum og kennd eru í kennaradeild. Heimilt er að meta heildstætt fyrra nám sem ígildi kjörsviðs.
  9. Náms- og matsnefndir afgreiða mál þannig að umsækjanda um mat á fyrra háskólanámi er send niðurstaða viðkomandi nefndar. Deildaráði, einkunnaskráningu og eftir atvikum umsjónarkennara viðkomandi námskeiðs/námskeiða sem eru metin skulu send afrit af bréfum nefndanna. Ef náms- og matsnefnd er ekki sammála um afgreiðslu máls sendir hún tillögu meirihluta og minnihluta til deildarfundar sem tekur ákvörðun í málinu.
  10. Umsækjandi eða umsjónarkennari viðkomandi námskeiðs getur áfrýjað ákvörðun náms- og matsnefndar til deildaráðs.
  11. Reglur þessar eru meginreglur til viðmiðunar. Allar viðmiðunartölur um einingar eru hámörk og náms- og matsnefnd er ekki skylt að meta fyrra nám að hámarki.
  12. Starfsmaður skrifstofu kennaradeildar skráir ákvarðanir nefndanna í fundargerð og formenn nefndanna skila deildarfundi skýrslu fyrir hvert skólaár í október.

IV.   Endurskoðun

  1. Reglur þessar skulu endurskoðaðar fyrir upphaf skólaárs 2011-2012.
Blar Gulur Hvitur
A A A
Bergvin Fannar Gunnarsson

„Ég valdi Háskólann á Akureyri ađ miklu leyti vegna stađsetningar skólans.“

Bergvin Fannar Gunnarsson nemandi
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf