Háskólinn á Akureyri

Leiðbeiningar um lokaverkefni í framhaldsbraut hafa nú verið endurskoðaðar og taka breytingar gildi frá og með

Reglur um lokaverkefni í diplómu- og meistaranámi

Leiðbeiningar um lokaverkefni í framhaldsbraut hafa nú verið endurskoðaðar og taka breytingar gildi frá og með vormisseri 2010.

Helsta breyting varðar meistaraprófsritgerð MPR0230, 60 eininga ritgerð í M.Ed.-námi í menntunarfræðum. Frá og með vormisseri 2010 er munnleg vörn meistaraprófsritgerðar felld niður í M.E. náminu. Kaflinn um skil ritgerðar hefur því verið endurskoðaður og eru nemendur og leiðsögukennarar beðnir um að kynna sér hann. Þetta þýðir í reynd smávegis rýmkun á skilum til leiðsagnarnefnda, en skilin færast aftur um tvær vikur og verða 15. mars nú á vormisseri.

  • Kaflinn um skil meistaraprófsritgerðar MRP0220 er samhljóða.
  • Aðrar breytingar eru uppfærsla vegna breytinga á heiti kennaradeildar, sem breytist úr kennaraskor og heitir deildin á ný kennaradeild. Jafnframt breytist heiti hug- og félagsvísindadeildar í hug- og félagsvísindasvið.
  • Þá hafa verið gerðar breytingar þar sem fjallað er um prófdómara og eru þær í samræmi við nýjar námsmatsreglur HA sem tóku gildi 1. janúar sl.
  • Aðeins þeir sem skráðir eru í  60 og 90 eininga ritgerðir eiga rétt á framvinduvottorði (LÍN) skv. upplýsingum frá kennslusviði.
  • Námskeiðið Þróunarverkefni á vettvangi, ÞVE0155 er nú ekki lengur skilgreint sem lokaverkefni.
  • Aðrar breytingar varða röð efnisatriða, þátta sem betur mega fara og þess háttar lagfæringar sem ekki eru efnislegar.

Nemendur, leiðsögukennarar og ráðunautar eru hvattir til að kynna sér leiðbeiningarnar um lokaverkefni vel. Þar er að finna svör við ýmsum spurningum sem kunna að vakna í vinnsluferli lokaverkefna.

M.Ed. ritgerð í kennaradeild (MPR0230)- leiðbeiningar

M.Ed. ritgerð í kennaradeild (MPR0220)- leiðbeiningar

Meistaraprófsverkefni í kennaradeild (MPR0215/MPV0215)- leiðbeiningar

Diplómuverkefni (DVE0155) - leiðbeiningar

Smellið hér til að sjá nánari leiðbeiningar um rafræn skil lokaverkefna til BSHA (bókasafns HA).
Blar Gulur Hvitur
A A A
Máney Sveinsdóttir

„Nám í líftćkni er ţverfaglegt, ađgengi ađ kennurum er gott og ađstađan til ađ stunda rannsóknir er frábćr. “

Máney Sveinsdóttir líftćknifrćđingur
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf