Meistaranám til M.A.-gráðu er ætlað þeim sem vilja efla starfshæfni sína og sérþekkingu á sviði menntavísinda og byggja upp sérhæfingu í rannsóknum í menntavísindum. Inntökuskilyrði er bakkalárpróf eða sambærilegt próf með að jafnaði fyrstu einkunn. Við upphaf náms skráir nemandi sig á tilgreint áherslusvið eða í almennt nám án slíkrar sérhæfingar.
Áherslusvið eru sett saman úr kjarnanámskeiðum (sem eru sameiginleg öllum áherslusviðum), skyldunámskeiðum áherslusviðs, lokaverkefni og valnámskeiðum. Lokaverkefni skal vera á því áherslusviði sem nemandinn er skráður á. Krafa er gerð um ákveðna tímasókn í námskeið. Kennsla fer fram í staðbundnum lotum, að jafnaði fjórum sinnum á misseri, en að öðru leyti með breytilegu fjarnámssniði.
|
„Háskólinn á Akureyri varð fyrir valinu vegna þess að þar fann ég nám sem ég hafði lengi haft áhuga á til að bæta þekkingu mína, þ.e. lestrarfræði. Mér finnst verulega gott að fara í staðarloturnar til Akureyrar því þá gefst mér tími til að einbeita mér að náminu og komast frá daglegu amstri.“ Elsa Þorfinna Dýrfjörð |
![]() |
| Haust | Vor |
|
Kjarni: Áherslusvið: Sérkennslufræði Stjórnun í menntastofnunum |
Kjarni: Áherslusvið: Sérkennslufræði Stjórnun í menntastofnunum Valnámskeið Meistaraprófsritgerð |
| Sjá ítarlega náms- og kennsluskrá | |



