![]() |
|
|||||||||
|
„Heimskautaréttur við Háskólann á Akureyri tengir saman mörg svið þjóðaréttar og landsréttar, er í senn þverfaglegt og hnitmiðað nám. Áhersla er lögð á réttarsvið sem eru heimskautaríkjunum mikilvæg og fólkinu sem löndin byggja. Einstakur hópur fræðimanna hefur komið að náminu svo fyrir vikið er alþjóðlegur bragur á kennslunni og fjölbreytt sýn á þau álitamál sem upp koma í tengslum við viðfangsefni námskeiðanna. Námið er í takt við síaukinn áhuga á heimskautasvæðunum og nýtur góðs af nærveru við ýmsar stofnanir, s.s. Stofnun Vilhjálms Stefánssonar, PAME og CAFF, auk heldur samstarfs við University of the Arctic.“ Guðmundur Egill Erlendsson |
|
Nám til M.A.-gráđu í heimskautarétti (120 ECTS einingar)
Nemendur ljúka 60 einingum með námskeiðum og skrifa viðamikla meistaraprófsritgerð (60 eininga). Háskólamenntaður sérfræðingur á viðkomandi sviði hefur umsjón með undirbúningi ritgerðarinnar, en hún á að felast í einstaklingsbundinni og sjálfstæðri vinnu á völdu sérsviði innan heimskautaréttarins. Nemendur brautskrást með M.A. gráðu í heimskautarétti (þrep 2, stig 4) sem veitir aðgang að doktorsnámi (þrep 3).
- Inntökuskilyrði til 120 eininga meistaranáms (M.A.): bakkalárpróf í skyldum greinum hug - og félagsvísinda (þrep 1, stig 2).
Nám til LL.M.-gráđu í heimskautarétti (90 ECTS)
Nemendur ljúka 60 einingum með námskeiðum og skrifa meistaraprófsritgerð (30 eininga). Háskólamenntaður sérfræðingur á viðkomandi sviði hefur umsjón með undirbúningi ritgerðarinnar, en hún á að felast í einstaklingsbundinni og sjálfstæðri vinnu á völdu sérsviði innan heimskautaréttarins. Nemendur brautskrást með meistarapróf í lögum (LL.M.- gráðu) (þrep 2, stig 4) sem veitir aðgang að doktorsnámi (þrep 3).
- Inntökuskilyrði til 90 eininga meistaranáms (LL.M.): bakkalárpróf í lögfræði (þrep 1, stig 2) eða sambærilegt próf.
Diplómunám á meistarastigi í heimskautarétti (60 ECTS einingar)
Nemendur ljúka 60 einingum með námskeiðum og brautskrást með diplómu á meistarastigi (þrep 2, stig 3).
- Inntökuskilyrði til 60 eininga diplómunáms á meistarastigi: bakkalárpróf í lögfræði (þrep 1, stig 2) eða sambærilegt próf.



