Háskólinn á Akureyri

Haustið 2010 býður Háskólinn á Akureyri væntanlegum nemendum að innrita sig í fjarnám í

Fjarnám á bakkalárstigi

Fletta kynningarbæklingi 2009Haustið 2010 býður Háskólinn á Akureyri væntanlegum nemendum að innrita sig í fjarnám í eftirfarandi greinum:

Heilbrigðisvísindasvið:

  • Hjúkrunarfræði (í boði á Akranesi)
  • iðjuþjálfunarfræði

Hug- og félagsvísindasvið:

  • Kennarafræði B.ed.
  • Kennarafræði M.ed. (hefst haustið 2012)

Viðskipta- og raunvísindasvið:

  • Auðlindafræði B.S. með áherslu á líftækni, sjávarútvegsfræði eða umhverfis- og orkufræði
  • Viðskiptafræði B.S. með áherslu á stjórnun og fjármál eða stjórnun og markaðsfræði

Umsóknarfrestur er til 5. júní 2010.

Tilhögun fjarnáms
Kennsla og rauntímasamskipti fara að jafnaði fram á myndfundum. Flest námskeið hafa heimasíðu í kennslukerfinu Blackboard. Þar hafa nemar aðgang að námsefni frá kennara, tæki til samskipta og verkefna- og prófatöku. Auk þess færist stöðugt í vöxt að kennsla í dagskóla sé tekin upp og henni miðlað til nema í gegnum Blackboard.

Samstarfsaðilar um land allt
Lögð er rík áhersla á að myndun námshópa á þeim stöðum þar sem boðið er upp á fjarnám. Með því móti myndast námssamfélag þar sem nemendur fá stuðning og hvatningu hver frá öðrum. Frá upphafi hefur háskólinn átt gott samstarf við fræðslu- og símenntunarmiðstöðvar víða um land. Þar standa nemum til boða námsver með vinnuaðstöðu og nettengingu, aðgengi að myndfundabúnaði og aðstöðu til próftöku. Lokapróf eru í flestum tilvikum tekin hjá fræðslu- og símenntunarmiðstöðvunum.

Helstu samstarfsaðilar eru:

  • Sauðárkrókur: Farskólinn - miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra
  • Ísafjörður: Háskólasetur Vestfjarða 
  • Egilsstaðir: Þekkingarnet Austurlands
  • Selfoss: Fræðslunet Suðurlands
  • Húsavík: Þekkingarsetur Þingeyinga 
  • Reykjanesbær: Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum 
  • Námsflokkar Hafnarfjarðar 
  • Akranes/Borgarnes: Símenntunarmiðstöð Vesturlands 
  • Vestmannaeyjar: Viska - Fræðslu- og símenntunarmiðstöð Vestmannaeyja

Annað:

  • Námsfyrirkomulag er misjafnt eftir deildum og væntanlegir nemendur eru beðnir um að kynna sér vel hvernig fyrirkomulag er í því námi sem þeir hyggjast innrita sig í.
  • Fjarnemar greiða sömu innritunargjöld og aðrir nemendur við háskólann en gætu þurft að greiða hófleg aðstöðugjöld til viðkomandi fræðslu- eða símenntunarstöðvar.
  • Nánari upplýsingar um námið og námsfyrirkomulag eru á heimasíðu deildar, í náms- og kennsluskrá og hjá viðkomandi skrifstofustjóra.
Blar Gulur Hvitur
A A A
Bergvin Fannar Gunnarsson

„Ég valdi Háskólann á Akureyri ađ miklu leyti vegna stađsetningar skólans.“

Bergvin Fannar Gunnarsson nemandi
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf