Háskólinn á Akureyri

Meginmarkmið kennslusviðs er að tryggja gott skipulag á daglegu starfi háskólans ásamt því að

Kennslusvið

KennslusviðMeginmarkmið kennslusviðs er að tryggja gott skipulag á daglegu starfi háskólans ásamt því að veita nemendum og starfsfólki almennar upplýsingar og þjónustu. Einkunnarorð sviðsins eru: þjónustulund, ábyrgð, samvinna, jákvæðni og metnaður. 

Solveig Hrafnsdóttir er forstöðumaður kennslusviðs

Afgreiðsla og nemendaskrá
Fulltrúar á kennslusviði annast m.a. almenna afgreiðslu og upplýsingagjöf, símsvörun, útgáfu vottorða, innkaup og afgreiðslu á skrifstofuvörum fyrir starfsfólk háskólans. Fulltrúar sjá um nemendaskrá háskólans, nemendaskrá annast innritun nýnema og skráningu nemenda í og úr námskeiðum og prófum.

Sigrún Harðardóttir er afgreiðslustjóri
Ólöf Árnadóttir er fulltrúi í afgreiðslu á Sólborg
Ingibjörg Smáradóttir er fulltrúi í afgreiðslu í Þingvallastræti

Nemendaskrá Háskólans á Akureyri er staðsett í afgreiðslu háskólans á Sólborg. Afgreiðslan er opin alla virka daga frá kl. 08.00 - 16.00.
Sími: 460 8000. Bréfsími: 460 8999
Hjá nemendaskrá er hægt að fá vottorð um skólavist og staðfest afrit af námsferlum og prófskírteinum. Nemendaskrá annast ásamt skrifstofum fræðasviða skráningu nemenda í sjúkra- og endurtökupróf og skráir vottorð frá nemendum vegna veikinda í prófum.

Skrifstofur fræðasviða
Skrifstofur fræðasviða annast skipulag á daglegu starfi í kennsludeildum háskólans í samstarfi við forseta fræðasviða. Í þessu felst m.a. frágangur á náms- og kennsluskrá og kennsluskiptingu, stundaskrárgerð, skráning upplýsinga um námsframvindu nemenda og prentun prófskírteina. 


Ása Guðmundardóttir er skrifstofustjóri viðskipta- og raunvísindasviðs
Heiða Kristín Jónsdóttir er skrifstofustjóri hug- og félagsvísindasviðs
Lára Ósk Garðarsdóttir er skrifstofustjóri heilbrigðisvísindasviðs
Torfhildur S. Þorgeirsdóttir er deildarstjóri skrifstofu kennaradeildar
Sæunn Mjöll Stefánsdóttir er fulltrúi á skrifstofu viðskipta- og raunvísindasviðs
Ingibjörg Smáradóttir er fulltrúi á skrifstofu hug- og félagsvísindasviðs

Prófstjórn
Skipulag og umsjón prófahalds fer fram á kennslusviði undir stjórn prófstjóra. Prófstjóri gefur út próftöflur og hefur yfirumsjón með prófahaldi, einkunnaskilum og skráningu einkunna. 

Daníel Freyr Jónsson er prófstjóri

Náms- og starfsráðgjöf
Náms- og starfsráðgjafi veitir nemendum ráðgjöf m.a. varðandi námsval, námstækni og bætt vinnubrögð í námi, auk þess veitir hann nemendum aðstoð við úrlausn persónulegra mála sem upp kunna að koma á námstímanum. Námsráðgjafi sinnir þörfum fatlaðra nemenda sérstaklega og býður einnig upp á þjónustu fyrir erlenda nemendur.

Solveig Hrafnsdóttir er náms- og starfsráðgjafi

Verkefnisstjóri alþjóðamála
Meginverkefni verkefnisstjóra alþjóðamála eru m.a. að fjalla um umsóknir frá erlendum skiptinemum og veita þeim upplýsingar og ráðgjöf varðandi skólavist í háskólanum. Jafnframt leiðbeinir hann þeim nemendum og kennurum háskólans sem hyggja á skiptinám eða starf erlendis. 

Rúnar Gunnarsson er verkefnastjóri alþjóðamála

Fjarkennsla
Meginverkefni verkefnisstjóra fjarkennslu eru m.a. að hafa yfirumsjón með fjarkennslu á vegum háskólans í samstarfi við kennsludeildir og skrifstofur fræðasviða. Verkefnisstjóri fjarkennslu annast samskipti við símenntunarmiðstöðvar vegna fjarfunda og annast umsjón og endurnýjun á þeim tækja- og hugbúnaði sem notaður er til fjarkennslu. Hann sér einnig um námskeiðahald og fræðslu fyrir notendur.

Daníel Freyr Jónsson er verkefnastjóri fjarkennslu
Erlendur Steinar Friðriksson er verkefnastjóri upplýsinga- og samskiptatækni

Sérfræðingur í upplýsingakerfum
Meginverkefni sérfræðings í upplýsingakerfum eru m.a. að þróa upplýsingakerfið Stefaníu og hafa yfirumsjón vef háskólans.

Stefán Jóhannsson er sérfræðingur í upplýsingakerfum

 

Blar Gulur Hvitur
A A A
Jóhanna Jónsdóttir

„Hjúkrunarfræði við HA er fjölbreytt og líflegt nám.“

Jóhanna Jónsdóttir nemandi
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf