Háskólinn á Akureyri

Stefna Háskólans á Akureyri er að búa nemendum persónulegt, jákvætt og krefjandi námsumhverfi.

Námsumhverfi

LesstofaStefna Háskólans á Akureyri er að búa nemendum persónulegt, jákvætt og krefjandi námsumhverfi. Kennsluhúsnæðið er nýlegt með vel búnum tölvuverum og aðstaða á bókasafni og í lesrýmum er til mikillar fyrirmyndar.

Kennsluhúsnæði
Kennsla fer fram á þremur stöðum á Akureyri; kennaradeild er til húsa við Þingvallastræti 23 (rétt hjá Akureyrarlaug) og stór fyrirlestrasalur er í Oddfellow-húsinu (á móti lögreglustöðinni). Meirihluti kennslunnar fer þó fram á Sólborg og Borgum þar sem framtíðarhúsnæði Háskólans er á einstöku háskólasvæði í hjarta Akureyrarbæjar.

Lesrými
Sérstök rými sem ætluð eru til lesturs og heimanáms eru á bókasafni á Sólborg og í Þingvallastræti og eru hús háskólans að jafnaði opin frá klukkan 8 - 22. Við upphaf náms fá nemendur afhent lykilkort og hafa þannig aðgang að lesrýmum hvenær sem er. Þeir sem ákveða að sinna heimanáminu á háskólasvæðinu upplifa oft líflegar umræður við skólafélagana m.a. um námið og félagslífið.

Tölvuaðstaða
Nemendur komast í tölvur á Sóborg, Borgum og í Þingvallastræti. Fartölvueign nemenda er mikil og fer ört vaxandi. Hægt er að tengjast netinu í gegnum þráðlaust net háskólans og með því móti geta nemendur unnið á sínar tölvur, en fengið aðstöðu í kennsluhúsnæðinu. Þessi aðferð er vinsæl, m.a. þegar hópavinna fer fram.

Bókasafn
Bókasafnið er í rúmgóðu húsnæði á Sólborg og þar er aðstaða til lesturs og tölvuvinnslu. Um er að ræða rannsókna- og sérfræðibókasafn sem sníður kaup sín á efni að mestu leyti eftir þörfum háskóladeildanna svo og þeim rannsóknum sem unnar eru við Háskólann. Á bókasafninu hafa nemendur aðgang að hópvinnuherbergi og í þeim er aðgangur að tölvum og interneti. Bókasafnið er opið frá 8:00 - 18:00 alla virka daga og 12:00 - 15:00 á laugardögum.

KaffiteríaGagnasmiðja
Í gagnasmiðju hafa nemendur aðgang að tölvum, sérhæfðum tækjum og forritum. Þar er einnig aðstaða til litaprentunar og frágangs á ritgerðum. Starfsfólk gagnasmiðju er til staðar til liðveislu og ráðgjafar á opnunartíma, en gagnasmiðja er opin alla virka daga frá 8:00 - 16:00.

Kaffitería
Á Sólborg er kaffitería þar sem starfsfólk og nemendur geta sest niður þegar stund gefst og spjallað saman yfir kaffibolla. Á virkum dögum er boðið upp á heitar máltíðir í hádeginu og seinnipartinn er alltaf eitthvað gómsætt með kaffinu. Kaffiterían er opin alla virka daga frá 8:00 - 15:30.

Þrek- og hreyfisalur
Fyrir þá sem hafa áhuga á bættri heilsu og líðan er þrek- og hreyfisalur á Sólborg. Salurinn er opinn mánudaga til föstudaga kl. 07:35 - 14:00 og kl. 16:00 - 21:30. Salurinn er lokaður á meðan kennslu stendur.

Blar Gulur Hvitur
A A A
Helga Rakel Guðrúnardóttir

„Ég valdi nám í umhverfis- og orkufræðum þar sem ég vildi fá breiðan bakgrunn með sveigjanleika fyrir frekara nám og framtíðarmöguleika.“

Helga Rakel Guðrúnardóttir umhverfis- og orkufræðingur
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf