Náms- og starfsráðgjöf HA býður uppá námskeið fyrir nemendur háskólans. Í boði eru námskeið í almennri námstækni, tímastjórnun og próftökutækni. Einnig námskeið um prófkvíða.
Almenn námstækni, tímastjórnun og próftökutækni
Þetta námskeið miðar að því að þjálfa nemendur í markvissum vinnubrögðum í háskólanámi. Tekin eru fyrir atriði eins og lestartækni, glósutækni, æfingar í minnistækni, farið er í gerð tímaáætlana og hugtakið frestun, rætt. Einnig fá nemendur leiðbeiningar um undirbúning fyrir próf. Kennd er gerð upplestraráætlana og farið í atriði varðandi markvissa upprifjun og gefin eru almenn heilræði um hegðun og lifnaðarhætti í prófatíð. Þetta námskeið er að jafnaði haldið í september ár hvert.
Prófkvíði
Á þessu námskeiði er kvíðahugtakið rætt, farið er í kvíðastjórnun rædd atriði varðandi aðgerðir sem nemendum standa til boða vegna prófkvíða. Slökun er kennd á námskeiðinu.
ATHUGIÐ að til að sækja um framlengingu á próftíma vegna prófkvíða þarf tvennt að koma til. Annars vegar að hafa setið námskeið um prófkvíða eða að sýna fram á að hafa verið í samtalsmeðferð hjá viðurkenndum sérfræðingi þar að lútandi. Hins vegar að hafa tekið prófkvíðakvarða Speilbergers og skorað lágmark 60 stig á honum. Námsráðgjafi leggur þennan kvarða fyrir.


