Símenntun
Háskólans á Akureyri
Sólborg við Norðurslóð
600 Akureyri
Sími: 460 8091
Fax: 460 8999
Veffang: http://unak.is/simenntun
Netfang: simennt@unak.is
Námskeið á vegum Símenntunar Háskólans á Akureyri eru opin öllum, en oft með áherslu á sérstaka markhópa.
Skráningu á námskeið lýkur að jafnaði einni viku fyrir upphaf þess.
Næstu námskeið:
Lífsvefurinn - Sjálfstyrkingarnám fyrir konur í starfi og einkalífi
Kennt fimmtudagana 16., 23. og 30. sept., 7. og 14.
okt. kl. 8:10-12:30.
Áhersla er lögð á skapandi lífssýn þar sem unnið er með samhengið milli sjálfsmyndar og færni í samskiptum. Kennari er
Valgerður H. Bjarnadóttir, félagsráðgjafi og MA í femínískri trúarheimspeki og menningarsögu.
Áhersla á skapandi lífssýn þar sem unnið er með samhengið milli sjálfsmyndar og færni í samskiptum. Kennari er Valgerður H.
Bjarnadóttir, félagsráðgjafi og MA í femínískri trúarheimspeki og menningarsögu. Hún hefur starfað að málefnum kvenna,
kennslu og ráðgjöf í áratugi og hefur fjölþætta reynslu að baki.
Samráð við starfsmenn á erfiðum tímum: Hvaða aðferðir skila árangri?
Þriðjudaginn 21. sept. kl.
13:00-17:00.
Stjórnendur standa, nú sem aldrei fyrr, frammi fyrir kröfum um hagræðingu í rekstri og endurskipulagningu á starfsemi. Samráð við starfsmenn
er lykilatriði til að vel takist til. Farið yfir hvernig skilvirk samskipti innan skipulagsheilda eru byggð upp, mismunandi form og aðferðir samráðs. Kennari er
Arndís Jónsdóttir, stjórnunarráðgjafi MSc í vinnusálfræði. Námskeiðið hefur fengið toppeinkunn í mati
þátttakenda.
Markaðssetning vöru og þjónustu
Kennt á miðvikudögum 29. sept. til 10. des. kl. 16:15-18:55.
Hagnýtt námskeið þar sem fjallað verður um hlutverk faglegs markaðsstarfs innan fyrirtækja og samfélags og mikilvægi stjórnunar
þess. Lögð áhersla á markaðssetningu þjónustu og þarfir viðskiptavinarins. Verkefni og þjálfun í hagnýtum lausnum
í markaðsstarfi. Kennarar eru Hafdís Björg Hjálmarsdóttir, lektor og Vera Kristín Vestmann Kristjánsdóttir, aðjúnkt við
viðskiptadeild HA, auk sérfræðinga úr atvinnulífinu.
Nánari lýsingu á náminu má sjá hér
Frekari upplýsingar um nám og námskeið ásamt skráningaformum eru til vinstri hér á síðunni.


