Háskólinn á Akureyri

  - Í samstarfi við Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins - Fjarkennt frá Hafnarfirði Hverjum

Aspergersheilkenni og svipađar raskanir á einhverfurófi - grunnnámskeiđ

  - Í samstarfi við Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins - Fjarkennt frá Hafnarfirði

Hverjum ætlað
Námskeiðið er ætlað þeim sem starfa með börnum með Aspergersheilkenni og börnum með röskun á einhverfurófi án stórvægilegra frávika í mál- og vitsmunaþroska, s.s. grunnskólakennurum og öðru starfsfólki grunnskóla. Einnig foreldrum, aðstandendum og öðrum sem hafa áhuga.

Markmið
Efla þekkingu þátttakenda á einhverfurófinu og einkum á þörfum einstaklinga með Aspergersheilkenni. Auka gæði þeirrar þjónustu sem veitt er þessum hópi barna og fjölskyldum þeirra. Efla færni til að byggja upp íhlutun þar sem markviss vinnubrögð eru höfð að leiðarljósi. Skapa vettvang fyrir foreldra og fagfólk sem er að fást við sambærileg verkefni.

Efni
Fjallað verður m.a. um einhverfurófið og muninn á Aspergersheilkenni og einhverfu. Kynntar verða leiðir í uppeldi og kennslu, þar sem áhersla er lögð á félagslega færni og félagslegan skilning. Tekið er mið af þörfum barna á aldrinum 6-18 ára í grunnskóla og framhaldsskóla. Einnig verður fjallað um hvenær og hvernig eigi að upplýsa einstakling um ástand sitt og hvernig skólaganga og lítur út frá sjónarhóli ungrar konu með Aspergersheilkenni; að ganga í skóla og byggja upp líf sitt. Námskeiðið er byggt á fyrirlestrum myndböndum og umræðum. 

Kennarar: Sigrún Hjartardóttir, leikskólasérkennari og Laufey I Gunnarsdóttir, þroskaþjálfi
Tími: Þri. 19. okt. kl. 9:00-16:00
Verð: 14.400 fyrir fagfólk/3.600 kr. fyrir aðstandendur og háskólanema
Staður: stofa N201 - Sólborg Háskólinn á Akureyri

Blar Gulur Hvitur
A A A
Ástríđur Ólafsdóttir

„Í mínum huga var líftćkninámiđ viđ HA heillandi vegna sérstöđu sinnar og tengingar viđ viđskiptafrćđilega hliđ fagsins.“

Ástríđur Ólafsdóttir nemandi í líftćkni
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf