Háskólinn á Akureyri

Útskrift 5. júní 2009Símenntun Háskólans á Akureyri útskrifaði 7. júní sl. 21

Brautskráningar

Útskrift 5. júní 2009

Símenntun Háskólans á Akureyri útskrifaði 7. júní sl. 21 nemanda sem hafa lagt stund á þriggja missera, 54 ECTS eininga, nám með starfi í rekstrar- og viðskiptafræðum. Námið sem var í samstarfi við viðskipta- og raunvísindadeild hófst á vormisseri 2008.
Kenndar voru þrjár námsgreinar á misseri 45 kennslustundir hver. Þessar námsgreinar voru: Stjórnun, fjárhagsbókhald og ársreikningar, upplýsingatækni og fræðileg vinnubrögð, rekstrarhagfræði, lögfræði, markaðsfræði, skattskil, mannauðsstjórnun og fjármál.
Kennt var í sex 21 kennslustunda lotum á misseri eða 18 lotum samtals. Alls var námið 405 kennslustundir. Þetta fyrirkomulag hefur gert fleirum en Eyfirðingum kleift að sækja námið og komu nemendur víða að.

Blásarakvartett frá Tónlistarskóla Akureyrar undir stjórn Þorkels Jóhannssonar flutti fjögur íslensk lög.

Ávörp fluttu: Þorsteinn Gunnarsson háskólarektor og Gunnar Sturla Gíslason fyrir hönd nemenda.

Hér má finna ávarp rektors!

img_3260_400_01

img_3261_400_01

img_3266_400_01

img_3289_400_01

img_3294_400_02

Blar Gulur Hvitur
A A A
Hjörtur Ágústsson

„Ég flutti frá Reykjavík til Akureyrar til ađ stunda nám í nútímafrćđi. Námiđ var lćrdómsríkt ekki síst ferđ mín til Indlands í skiptinám. “

Hjörtur Ágústsson kynningarfulltrúi hjá Evrópu unga fólksins
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf